Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
9. júní 2026

Til­laga að deili­skipu­lags­breyt­ingu vegna nýrrar veg­teng­ingar

Grindavíkurbær kynnir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hlíðarhverfis.

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi vegna nýrrar vegtengingar milli Arnarhlíðar og Efrahóps. Breytingin er gerð í kjölfar náttúruhamfara í Grindavík og felur í sér breytingu á götuskipulagi á skilgreindu skipulagssvæði. Markmið breytingarinnar er að tryggja betri tengingar innan hverfisins og auka sveigjanleika umferðar þ.m.t. aukið svigrúm viðbragðaðila til að komast á milli staða.

Skipulagssvæðið afmarkast af Hópsbraut að sunnan, Efrahópi að vestan og Arnarhlíð að austan. Komi í ljós eftir breytingina að umferð í gegnum neðri götu Efrahóps aukist vegna breytingarinnar mun sveitarfélagið skoða að bregðast við með því að loka götunni í vesturenda og gera hana að botnlanga í þá áttina.

Grenndarkynning þessi fer fram á grundvelli 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Athugasemdafrestur

Frestur til að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna er til og með 30. júní 2026. Athugasemdir skulu berast skriflega á netfangið skipulag@grindavik.is.

Þeir sem ekki skila inn athugasemdum innan tilskilins frests teljast ekki gera athugasemdir við breytinguna.

Bókun innviðanefndar Grindavíkurbæjar — fundur nr. 15

„Breytingaruppdráttur vegna óverulegrar deiliskipulagsbreytingar í Hlíðarhverfi vegna nýrra aðkomuleiða að Efrahópi í kjölfar náttúruhamfara í Grindavík lagður fram. Innviðanefnd samþykkir að grenndarkynna framlagða óverulega deiliskipulagsbreytingu fyrir öllum lóðarhöfum og forkaupsréttarhöfum við Efrahóp og Arnarhlíð. Jafnframt verður skipulagsbreytingin auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins.“

Lagaheimild: Skipulagslög nr. 123/2010, 2. mgr. 43. gr. og 44. gr.

Með fylgir breytingaruppdráttur deiliskipulags.

Virðingarfyllst,

Skipulagsfulltrúi, Grindavíkurbær

skipulag@grindavik.is