Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
20. nóvember 2026

Grind­vík­ingar hvatt­ir til að taka þátt í íbúa­könn­un

Maskína stendur nú fyrir íbúakönnun meðal Grindvíkinga að beiðni Grindavíkurbæjar og Járngerðar, hagsmunasamtaka Grindvíkinga.

Könnunin er fyrir alla sem bjuggu í Grindavík við rýmingu bæjarins 10. nóvember 2023.

Íbúakönnun meðal Grindvíkinga

Spurt er um búsetu og framtíð Grindavíkur, traust til stofnana og afstöðu til endurkaupaáætlunar Þórkötlu. 

Maskína sendir boð um þátttöku í tölvupósti eða með smáskilaboðum. Þeir sem fá ekki boð geta svarað í gegnum hlekkinn hér fyrir ofan. Þátttakendur auðkenna sig rafrænt og hver og einn getur aðeins svarað einu sinni. Könnunin er á íslensku, ensku og pólsku. Svörin eru ekki rakin til einstaklinga.

Rödd Grindvíkinga þarf að heyrast. Ég hvet alla sem bjuggu í bænum við rýminguna til að taka þátt og lýsa yfir sinni skoðun.

segir Pétur G. Markan bæjarstjóri.

Grindavíkurbær og Járngerður hvetja Grindvíkinga til að svara sem fyrst. Því fleiri sem svara, því betri mynd gefa niðurstöðurnar af afstöðu Grindvíkinga.

Ef kennitalan þín finnst ekki á skrá yfir íbúa við rýminguna, hafðu samband við bæjarskrifstofuna á grindavik@grindavik.is.