Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
20. nóvember 2026

End­ur­skoð­un reglna um styrki vegna íþrótta­af­reka

Grindavíkurbær óskar eftir ábendingum frá íbúum vegna endurskoðunar á reglum um styrki vegna íþróttaafreka.

Frestur til að senda inn ábendingar er til 6. desember.

Grindavíkurbær hefur hafið vinnu við að endurskoða reglur um styrki vegna íþróttaafreka. Markmiðið er að einfalda núverandi fyrirkomulag, skýra úthlutunarviðmið og tryggja að reglurnar styðji sem best við íþróttafólk og íþróttastarf í Grindavík.

Í tengslum við endurskoðunina er óskað eftir sjónarmiðum og ábendingum frá íbúum, íþróttafólki og íþróttafélögum um núverandi reglur og mögulegar breytingar á þeim.

Íbúar eru hvattir til að kynna sér gildandi reglur um styrki vegna íþróttaafreka og senda ábendingar á netfangið eggert@grindavik.is.

Allar ábendingar eru vel þegnar og munu nýtast við áframhaldandi vinnu við endurskoðun reglnanna.