Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
18. nóvember 2026

Lengri opn­un­ar­tími í íþrótta­mann­virkj­um

Grindavíkurbær hefur lengt opnunartíma íþróttamannvirkja og aukið þannig aðgengi íbúa og gesta að aðstöðunni.

Með lengri opnunartíma vill sveitarfélagið koma til móts við ólíkar þarfir notenda og skapa fleiri tækifæri til hreyfingar, heilsueflingar og samveru.

Opnunartími íþróttamannvirkja er eftirfarandi:

  • Mánudagar: 14:00–21:00
  • Þriðjudagar: 08:00–18:00
  • Miðvikudagar: 08:00–21:00
  • Fimmtudagar: 08:00–18:00
  • Föstudagar: 08:00–18:00
  • Laugardagar: 12:00–17:00
  • Sunnudagar: Lokað

Við hvetjum Grindvíkinga og aðra gesti til að nýta sér aðstöðuna og njóta þess sem íþróttamannvirkin hafa upp á að bjóða.