Slökkviliðið áfram á aukinni vakt og Þruman í íþróttamannvirkin
Bæjarstjórn samþykkti fjárhagsáætlun 2027. Undanþága Þórkötlu frá fasteignagjöldum hefur veruleg áhrif á rekstur bæjarins.

Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti samhljóða á fundi sínum 24. nóvember að framlengja samning við forsætisráðuneytið um rekstur Slökkviliðs Grindavíkur. Samningurinn gildir út árið 2027. Slökkviliðið verður því áfram á aukinni vakt allan sólarhringinn. Sú vakt er ein af forsendum þess að óhætt sé að dvelja og starfa í Grindavík samkvæmt nýju áhættumati.
Bæjarstjórn samþykkti einnig 7,8 milljóna króna viðauka vegna aukinna umsvifa í félagsmiðstöðinni Þrumunni. Þar af 3,5 milljónir í kaup á búnaði. Félagsmiðstöðin flyst nú í íþróttamannvirkin, þar sem Grindvíkingar fá betri samkomustað.
Bærinn gerir ráð fyrir að íbúum haldi áfram að fjölga. Nú eru 914 íbúar með lögheimili í Grindavík og um 530 búa í bænum. Í árslok 2030 er gert ráð fyrir að 1.274 verði með lögheimili í bænum og að 1.009 búi þar.
Fasteignagjöld ársins 2027 verða lögð á eftir sömu reglum og árið 2026. Tekjuviðmið fyrir afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignagjöldum eru óbreytt.
Á fundinum var fjárhagsáætlun bæjarins og stofnana hans fyrir árin 2027 til 2030 samþykkt samhljóða. Áætlunin gerir ráð fyrir að starfsemi bæjarins aukist í skrefum á tímabilinu. Tekjur af útsvari eru áætlaðar út frá fjölgun íbúa. Útsvar verður áfram í lögbundnu hámarki, 14,97%.
Tekjur og gjöld ná ekki jafnvægi á tímabilinu. Gert er ráð fyrir rekstrarhalla öll árin. Hallinn er áætlaður 172 milljónir króna árið 2027 og 633 milljónir króna árið 2030.
Fasteignafélagið Þórkatla er undanþegið fasteignagjöldum samkvæmt lögum nr. 16/2024. Bærinn verður af þeirri ástæðu af tekjum sem nema 315 milljónum króna á árinu 2027. Þar af verður vatnsveitan af 28 milljónum og fráveitan af 91 milljón. Án undanþágunnar yrði enginn rekstrarhalli árin 2027 og 2028 og vatnsveita og fráveita yrðu reknar án halla.
Verulega gengur á handbært fé bæjarins. Í upphafi árs 2027 er það áætlað 4,9 milljarðar króna, þar af 2 milljarðar í bótasjóði. Í árslok 2030 er gert ráð fyrir að handbært fé verði 3,1 milljarður króna og að bótasjóðurinn verði tæmdur. Skýrist það ekki síst af þeim umfangsmiklu framkvæmdum sem unnið er að í bænum, sem fjármagnaðar eru af ríkinu og Grindavíkurbæ, ásamt endurbótum á húsnæði í eigu sveitarfélagsins eftir náttúruhamfarirnar.
Fundargerð bæjarstjórnar er á vef Grindavíkurbæjar.


