Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Bæj­ar­stjórn

Bæjarstjórn Grindavíkur er kjörin af íbúum til fjögurra ára í senn. Hún fer með æðsta ákvörðunarvald sveitarfélagsins og mótar stefnu um þjónustu, rekstur og framtíð bæjarins. Næstu sveitastjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026.

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Á meðal verkefna er kosning í ráð og nefndir á vegum bæjarstjórnar, yfirstjórn á fjárreiðum bæjarins, gerð samþykkta og ákvörðun gjalda.

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar fundar síðasta þriðjudag hvers mánaðar kl. 14:00. Fundirnir fara fram í fundarsal bæjarstjórnar að Víkurbraut 62 og eru opnir almenningi.

Fundargerðir bæjarstjórnar eru birtar á vef Grindavíkurbæjar að loknum fundum. 

Netfang bæjarstjórnar er baejarstjorn@grindavik.is.

Bæjarstjórn Grindavíkur 2022-2026

Varabæjarfulltrúar:

  • Sverrir Auðunsson (B)
  • Irmý Rós Þrosteinsdóttir (D)
  • Eva Lind Matthíasdóttir (D)
  • Ragnheiður Eiríksdóttir (U)
  • Unnar Á magnússon (M)
  • Hulda Kristín Smáradóttir (M)
  • Páll Gíslason (M)

Bæjarstjórnarkosningar 2022

Kosið var til bæjarstjórnar 14. maí 2022. Á kjörskrá voru 2.527 einstaklingar, atkvæði greiddu 1.623, auðir seðlar voru 20 og 2 seðlar voru ógildir. Kjörsókn var 64,23%. 

Niðurstöður kosninganna voru eftirfarandi: 

  • B-listi 324 atkvæði, eða 20,24% og 1 mann kjörinn 
  • D-listi 397 atkvæði, eða 24,80% og 2 menn kjörna 
  • M-listi 519 atkvæði, eða 32,42% og 3 menn kjörna 
  • S-listi 149 atkvæði, eða 09,31% og engan mann kjörinn 
  • U-listi 212 atkvæði, eða 13,24% og 1 mann kjörinn

Meirihlutasamstarf er með B, D og U lista.