Málefnasamningur meirihluta
Í kjölfar sveitastjórnarkosninga 2026 ákváðu allir bæjarfulltrúar að starfa saman í bæjarstjórn Grindavíkurbæjar. Því er hvorki meirihluti né minnihluti í bæjarstjórn.

Samfélagssáttmáli um framtíð Grindavíkur
Nýr meirihluti í bæjarstjórn Grindavíkur, sem samanstendur af fulltrúum B-, D- og M-lista, hefur undirritað samfélagssáttmála um endurreisn bæjarins. Sameiginlegt markmið er að byggja upp örugga, líflega og samheldna Grindavík þar sem íbúar hafa raunhæft val um að snúa heim og byggja upp sína framtíð.
Uppbyggingin mun byggja á gildunum samstöðu, öryggi, trausti, virðingu og seiglu, og skiptist í fimm meginstoðir:
- Öruggt samfélag: Öryggi íbúa verður alltaf í fyrsta sæti. Unnið verður heildstætt og „lifandi“ áhættumat í samstarfi við viðeigandi aðila og lögð áhersla á skýra og reglulega upplýsingagjöf til íbúa.
- Heimili og heimkoma: Skapa þarf aukinn fyrirsjáanleika um framtíð fasteigna í bænum. Íbúar eiga að fá skýr svör og fjölbreyttar leiðir (t.d. kaup eða leigu) til að geta snúið aftur heim þegar þeir eru tilbúnir.
- Þjónusta og atvinnulíf: Staðið verður þétt við bakið á atvinnulífinu og unnið að eflingu grunninnviða, svo sem raforkuöryggis. Þjónusta við íbúa verður efld og upplýsingaflæði bætt í nánu samráði við samfélagið.
- Félagsauður og velferð: Tryggja þarf áframhaldandi aðgengi að sálrænum og félagslegum stuðningi, byggja upp skólastarf að nýju og styðja við það öfluga íþrótta-, æskulýðs- og félagsstarf sem bindur samfélagið saman.
- Skipulag og ásýnd: Aðalskipulag verður endurskoðað miðað við nýjar forsendur. Markvisst verður unnið að því að fegra þau svæði þar sem niðurrif hefur farið fram, með virðingu fyrir sögu og sérkennum Grindavíkur.
Næstu sex mánuðir
Til að fylgja sáttmálanum eftir hafa verið sett skýr forgangsverkefni fyrir fyrstu sex mánuði kjörtímabilsins. Þar vegur þyngst að ráða nýjan bæjarstjóra og styrkja stjórnsýsluna, auka grunnþjónustu, leysa úr húsnæðismálum, halda áfram vinnu við öryggisáætlanir og eiga reglulegt samráð við íbúa.
Þjóðstjórn í Grindavík er tákn um samstöðu
Myndun breiðrar samstjórnar allra kjörinna fulltrúa B-, D- og M-lista í bæjarstjórn Grindavíkur er tímamótaákvörðun og bein afleiðing þeirra fordæmalausu náttúruhamfara sem dunið hafa á samfélaginu. Þessi svokallaða „þjóðstjórn“ endurspeglar þann skilning kjörinna fulltrúa að baráttan við náttúruöflin og hið yfirgripsmikla verkefni sem endurreisn bæjarins er, krefst órofa samstöðu, ábyrgðar og seiglu.
Með því að taka höndum saman um einn sameiginlegan samfélagssáttmála sendir öll bæjarstjórnin þau skýru og mikilvægu skilaboð bæði til íbúa og stjórnvalda að tekist verði á við uppbygginguna af einhug og heilindum, þar sem öryggi, velferð og heimkoma Grindvíkinga eru sett í algeran forgang í þeirri lífsnauðsynlegu vegferð að láta bæinn rísa á ný.