Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
2. október 2026

Ný vöru­merkja­hand­bók Grinda­vík­ur

Ný vörumerkjahandbók tryggir samræmda ásýnd á ólíkum miðlum.

Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á fundi sínum 30. september nýja vörumerkjahandbók Grindavíkur. Handbókin byggir á hinu þekkta byggðarmerki Grindavíkur frá árinu 1986 og markar skýra og samræmda umgjörð um sjónræna ásýnd Grindavíkur.

Byggðarmerki Grindavíkur var tekið í notkun árið 1986 og hannað af Kristínu Þorkelsdóttur hjá Auglýsingastofunni AUK. Merkið sýnir svartan geithafur með gul horn og rauðar klaufir á bláum og hvítum grunni.

Sterk saga og táknfræði liggur að baki merkinu. Blái liturinn vísar til hafsins og hvítu rendurnar til öldufaldanna og minna þannig á hversu samofin saga Grindavíkur er hafinu og sjósókn. Í greinargerð hönnunarnefndarinnar frá 1986 kemur jafnframt fram að líta megi á hvítu rendurnar sem vísun í fyrri hluta nafnsins Grindavík.

Hafurinn á rætur í Landnámu

Geithafurinn á sér ekki síður áhugaverða sögu. Hugmyndin er sótt í Landnámabók og frásögnina af Hafur-Birni, syni Molda-Gnúps Hrólfssonar sem nam land í Grindavík. Björn dreymdi að bergbúi kæmi til hans og byði honum að gerast félagi hans. Í kjölfarið kom hafur til geita hans og fé hans tímgaðist svo ört að hann varð vellauðugur og fékk nafnið Hafur-Björn.

Hafurinn stendur þannig fyrir frjósemi og velsæld og tengist jafnframt vernd bergbúans í frásögn Landnámu af landvættum sem fylgdu Hafur-Birni.

Merki Grindavíkur kemur í nokkrum útfærslum sem tryggja skýra og samræmda notkun á ólíkum miðlum.

Samræmd ásýnd Grindavíkur

Vörumerkjahandbókin byggir áfram á þessari sögu og táknfræði. Grunnhugmynd merkisins, geithafurinn og litir þess standa óhögguð. Áherslan er á að tryggja samræmda og skýra notkun merkisins við þær fjölbreyttu aðstæður sem það birtist í í dag, hvort sem er á prenti, á vef, samfélagsmiðlum, skiltum eða öðrum stafrænum miðlum.

Litaspjald handbókarinnar sækir sömuleiðis í sögu og umhverfi Grindavíkur. Það byggir á litum byggðarmerkisins en við þá bætast litir sem sóttir eru í sjó, kviku og náttúru og gefa þannig fjölbreyttari möguleika í allri miðlun.

Handbókin tekur meðal annars til notkunar merkisins, leturs og lita, ásamt útfærslum fyrir stofnanir og svið sveitarfélagsins, prentað efni, stafræna miðla, samfélagsmiðla og skilti. Markmiðið er að skapa sterka og samræmda ásýnd þar sem saga og sérkenni Grindavíkur fá áfram að njóta sín.

Vörumerkjahandbók og merkjapakki

Vörumerkjahandbókin veitir leiðbeiningar um rétta notkun merkis Grindavíkur, lita, leturs og annarra þátta sem mynda sjónræna ásýnd Grindavíkur.

Í merkjapakkanum eru samþykktar útfærslur merkisins til notkunar í stafrænu og prentuðu efni.

Vörumerkjahandbókin var unnin af Guðmundi Bernharð Flosasyni, grafískum hönnuði FÍT hjá M74 Studio.