Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
3. júní 2026

Kos­ið í fasta­nefnd­ir á fyrsta fundi bæj­ar­stjórn­ar

Á fundi bæjarstjórnar Grindavíkur í gær var kosið í fastanefndir sveitarfélagsins fyrir komandi kjörtímabil.

Í bæjarráð voru kjörin:

  • Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður
  • Ásrún Helga Kristinsdóttir
  • Magnús Jakobsson

Bæjarráð fer með yfirstjórn fjármála og stjórnsýslu sveitarfélagsins á milli funda bæjarstjórnar og gegnir mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri sveitarfélagsins.

Jafnframt var skipað í aðrar nefndir og ráð sveitarfélagsins. Valgerður Jennýjardóttir verður formaður samfélagsnefndar og Guðmundur L. Pálsson formaður innviðanefndar.

Samfélagsnefnd fer meðal annars með málefni skóla, íþrótta- og æskulýðsstarfs, félagsþjónustu og menningarlífs í sveitarfélaginu. Nefndin kemur einnig að uppbyggingu samfélagsins með áherslu á félagsauð, þátttöku og velferð íbúa.

Innviðanefnd fjallar meðal annars um skipulagsmál, framkvæmdir, þróun bæjarins og málefni hafnarinnar. Þar eru því mótuð ýmis verkefni sem snúa að uppbyggingu og umhverfi Grindavíkur til framtíðar.

Lista yfir fulltrúa í nefndum og ráðum Grindavíkurbæjar má sjá hér fyrir neðan.

Samfélagsnefnd

  • Valgerður Jennýjardóttir, formaður
  • Valgerður Ágústsdóttir
  • Eva Lind Matthíasdóttir
  • Jón Breki Einarsson
  • Björn Steinar Brynjólfsson

Innviðanefnd

  • Guðmundur L. Pálsson, formaður
  • Ómar Davíð Ólafsson
  • Þorleifur Ólafsson
  • Benedikt Steingrímsson
  • Gunnar Már Gunnarsson

Fjallskilanefnd

  • Ómar Davíð Ólafsson
  • Hrannar Elí Pálsson
  • Þorleifur Ólafsson

Yfirkjörstjórn

  • Kjartan Fr. Adolfsson, formaður
  • Arna Björg Rúnarsdóttir
  • Dóróthea Jónsdóttir

Fulltrúi Grindavíkurbæjar í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS)

  • Guðbjörg Eyjólfsdóttir

Fulltrúar Grindavíkurbæjar í samstarfsnefnd um svæðisskipulag Suðurnesja

  • Guðmundur L. Pálsson
  • Benedikt Steingrímsson

Fulltrúi Grindavíkurbæjar í Heilbrigðisnefnd Suðurnesja (HES)

  • Magnús Már Jakobsson

Fulltrúi Grindavíkurbæjar í stjórn Kölku sorpeyðingarstöðvar

  • Ásrún Helga Kristinsdóttir

Fulltrúi Grindavíkurbæjar í stjórn atvinnuþróunarfélagsins Heklunnar

  • Bæjarstjóri

Fulltrúi Grindavíkurbæjar í stjórn Reykjanes jarðvangs

  • Bæjarstjóri

Fulltrúi Grindavíkurbæjar á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

  • Ásrún Helga Kristinsdóttir

Fulltrúi Grindavíkurbæjar í eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands

  • Bæjarstjóri

Nánari upplýsingar má sjá í fundargerð bæjarstjórnar.