Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
18. maí 2026

Grinda­vík­ur­bær aug­lýs­ir eft­ir starfs­fólki

Grindavíkurbær auglýsir eftir öflugu og metnaðarfullu starfsfólki til starfa. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstaklinga sem vilja taka þátt í uppbyggingu og þróun samfélagsins í Grindavík.

Umsóknarfrestur um öll störfin er til 31. maí 2026. Nánari upplýsingar um störfin og umsóknarfrest má finna á ráðningavef sveitarfélagsins.

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um, sérstaklega þau sem hafa áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélags og menningarstarfs í Grindavík.

Leik- og grunnskólakennarar

Nýr samrekinn leik- og grunnskóli í Grindavík leitar að kennurum fyrir skólaárið 2026–2027. Um er að ræða 100% stöður í grunnskóla og 80–100% stöður fyrir leikskólakennara.

Skólinn tekur til starfa 1. ágúst 2026 og verður ætlaður börnum frá 12 mánaða aldri til 10. bekkjar. Lögð verður áhersla á skapandi og metnaðarfullt skólastarf þar sem vellíðan barna, fjölbreyttir kennsluhættir, læsi og leiðsagnarnám verða í forgrunni.

Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum sem hafa áhuga á að taka þátt í uppbyggingu framsækins skólasamfélags í Grindavík.

Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri, í síma 845-5121 eða á netfanginu gudlauge@grindavik.is.

Félagsráðgjafi

Grindavíkurbær auglýsir 80–100% starf félagsráðgjafa laust til umsóknar. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem lögð er áhersla á faglega þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, farsæld barna, ráðgjöf og samfélagsverkefni.

Leitað er að einstaklingi með starfsréttindi í félagsráðgjöf, reynslu af störfum í félagsþjónustu sveitarfélaga og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

Nánari upplýsingar veitir Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, í síma 420-1100 eða á netfanginu nmj@grindavik.is.

Forstöðumaður Bókasafns Grindavíkur

Grindavíkurbær auglýsir einnig 75% starf forstöðumanns Bókasafns Grindavíkur laust til umsóknar.

Um er að ræða fjölbreytt og skapandi starf þar sem áhersla er lögð á þjónustu við íbúa á öllum aldri, sérstaklega börn og ungmenni, ásamt virkri þátttöku í menningar- og samfélagsverkefnum sveitarfélagsins.

Forstöðumaður gegnir lykilhlutverki í að efla læsi, menningu og samfélagslega þátttöku í Grindavík, auk þess að hafa umsjón með starfsemi Kvikunnar menningarhúss.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Sólberg Jónsson í síma 420-1100 eða á netfanginu eggert@grindavik.is.