Laus störf
Velkomin á ráðningarvef Grindavíkurbæjar! Samkvæmt starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar skulu öll störf auglýst, nema um sé að ræða tímabundin afleysingastörf.
Félagsmiðstöðin Þruman auglýsir eftir drífandi, hugmyndaríkum og ábyrgum einstaklingi í starf frístundaleiðbeinanda. Um er að ræða 60% starf, seinni hluta dags og á einstaka viðburðum Þrumunnar á kvöldin. Ef þú ert hugmyndarík/ur, skapandi og hefur áhuga á starfi með börnum og ungmennum, þá erum við að leita að þér!
Frístundaleiðbeinandi tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd frístundastarfs fyrir ungmenni á aldrinum 10-16 ára hjá Grindavíkurbæ í nánu samstarfi við forstöðumann. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
Verkefni
- Starfsmaður tekur þátt í að skipuleggja og móta tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í samstarfi við forstöðumann
- Leitast eftir að mynda jákvætt, skapandi, vinalegt og opið andrúmsloft í frístundastarfi
- Sinnir hefðbundinni opnun félagsmiðstöðvar og verkefnum sem fylgja þeim s.s. undirbúningi og frágangi
- Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frítímastarfi
- Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni
- Góð samvinna og samráð við börn, unglinga og samstarfsfólk
Hæfnikröfur
- Menntun á sviði uppeldis- og eða tómstundafræða er æskileg
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum
- Færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera umburðalyndur
- Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum
- Geta til að tekið virkan þátt í hugmyndavinnu og breytingum með jákvæðni og samvinnu
- Hreint sakavottorð
- Hafa náð 20 ára aldri
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Öllum umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður frístundamála í síma 420-1100 og í netfanginu elinborg@grindavik.is.
Umsækjendur um stöðu frístundaleyðbeinanda þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um, sérstaklega þá sem hafa áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2026
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Sækja umFélagsmiðstöðin Þruman auglýsir eftir drífandi, hugmyndaríkum og ábyrgum einstaklingum í störf frístundaleiðbeinanda. Um er að ræða tímavinnu, seinni hluta dags og á einstaka viðburðum Þrumunnar á kvöldin. Ef þú ert hugmyndarík/ur, skapandi og hefur áhuga á starfi með börnum og ungmennum, þá erum við að leita að þér!
Frístundaleiðbeinandi tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd frístundastarfs fyrir ungmenni á aldrinum 10-16 ára hjá Grindavíkurbæ í nánu samstarfi við forstöðumann. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
Verkefni
- Starfsmaður tekur þátt í að skipuleggja og móta tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í samstarfi við forstöðumann
- Leitast eftir að mynda jákvætt, skapandi, vinalegt og opið andrúmsloft í frístundastarfi
- Sinnir hefðbundinni opnun félagsmiðstöðvar og verkefnum sem fylgja þeim s.s. undirbúningi og frágangi
- Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frítímastarfi
- Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni
- Góð samvinna og samráð við börn, unglinga og samstarfsfólk
Hæfnikröfur
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum
- Færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera umburðalyndur
- Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum
- Geta til að tekið virkan þátt í hugmyndavinnu og breytingum með jákvæðni og samvinnu
- Hreint sakavottorð
- Hafa náð 20 ára aldri
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Öllum umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður frístundamála í síma 420-1100 og í netfanginu elinborg@grindavik.is.
Umsækjendur um stöðu frístundaleyðbeinanda þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um, sérstaklega þá sem hafa áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2026
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Sækja umÍþróttamannvirki Grindavíkurbæjar auglýsa eftir öflugu og þjónustulunduðu starfsfólki í starf sundlaugarvarða. Um er að ræða tvö 60% störf, vaktaplan gerir meðal annars ráð fyrir vinnu seinniparta og helgar. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og geta staðist þolpróf/hæfnispróf sundlaugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.
Við leitum að starfsfólki sem getur unnið vel í síbreytilegu umhverfi og hefur mikla og ríka öryggisvitund. Mikilvægt er að starfsmaður hafi hag heildarinnar að leiðarljósi og vilja til að taka þátt í næstu skrefum í endurreisn bæjarins.
Verkefni
- Öryggisgæsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
- Klefavarsla fyrir íþróttahús og sundlaug
- Almenn þrif
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini og notendur íþróttahúss/sundlaugar
- Vinna á kappleikjum og öðrum viðburðum
- Önnur tilfallandi verkefni við íþróttamannvirki
Hæfnikröfur
- Mikil öryggis vitund
- Uppbyggileg og árangursrík samskiptahæfni
- Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð nálgun
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp
- Góður liðsmaður sem hefur hag heildarinnar að leiðarljósi
- Ábyrgðarkennd og jákvætt viðmót
- Góð íslenskukunnátta, enskukunnátta æskileg
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
- Hafa náð 20 ára aldri
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Öllum umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins til og með 25. október 2026.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Árni Ólafsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 420-1100 og í netfanginu joi@grindavik.is.
Umsækjendur um stöður sundlaugavarða þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um, sérstaklega þá sem hafa áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík.
Sækja um
Hjá Grindavíkurbæ er lögð áhersla á að starfsfólk veiti bestu þjónustu sem völ er á. Við ráðum hæfasta fólkið hverju sinni og fylgjum vönduðum stjórnsýsluháttum við ráðningar.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Þegar umsókn hefur verið send fær umsækjandi tölvupóst um að umsókn hafi borist. Öllum umsóknum um auglýst starf er svarað þegar ráðningu er lokið.
Hér fyrir neðan eru að finna upplýsingar um laus störf hjá Grindavíkurbæ á hverjum tíma.
Ef þú lendir í vandræðum með að sækja um starf hjá sveitarfélaginu vinsamlegast sendu póst á laun@grindavik.is