Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
15. apríl 2026

Yf­ir­lýs­ing bæj­ar­stjórn­ar: Vinn­um sam­an að end­ur­reisn sam­fé­lags í Grinda­vík

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lögð er áhersla á samstöðu og að ákvarðanir taki mið af vilja Grindvíkinga.

Íbúar og bæjaryfirvöld í Grindavík eru landsmönnum og stjórnvöldum afar þakklát fyrir þann mikla stuðning sem við höfum fundið fyrir á erfiðum tímum. Til að endurreisn bæjarins geti haldið áfram með farsælum hætti er þó mikilvægt að við vinnum í sameiningu að lausnum, þar sem vilji og þarfir íbúa eru í forgrunni. Við höfum áhyggjur af þeim hugmyndum sem uppi eru um að fresta beri skólahaldi næsta haust og af mögulegri mismunun við endurkaup eigna eftir fjölskyldugerð, þar sem við teljum slíkt geta staðið í vegi fyrir eðlilegri framþróun sveitarfélagsins.

Við teljum mikilvægt að treysta dómgreind Grindvíkinga þegar kemur að ákvörðunum um þeirra eigin mál og endurkomu heim. Skólastarf er algjör grunnforsenda til að gera barnafjölskyldum kleift að snúa aftur, enda hefur alltaf verið eftirsóknarvert að ala upp börn í bænum okkar. Ef ekki yrði af skólahaldi í haust þyrftu fjölskyldur að búa við óvissu í heilt ár í viðbót, sem myndi setja verulegt strik í reikninginn fyrir uppbyggingu samfélagsins.

Við skiljum vel og deilum áhyggjum af öryggismálum, en viljum jafnframt benda á að börnin okkar eru mörg hver nú þegar í bænum um helgar og taka þar þátt í iðandi íþrótta- og tómstundastarfi. Mikið og gott starf hefur verið unnið við að fylla í sprungur og girða af hættusvæði. Við teljum að öryggi barna sé oftar en ekki betur tryggt í skipulögðu og vel vöktuðu skólastarfi fremur en í eftirlitslausum frítíma. Rétt eins og börn á öðrum stöðum læra að varast umferð eða stórfljót, geta börnin okkar lært að umgangast sitt umhverfi með réttri leiðsögn.

Það er sömuleiðis mikilvægt að horfa til þess að eitt stærsta áfallið sem börn og ungmenni okkar kljást við í dag er missir á sínu daglega umhverfi, tengslaneti og vinum. Mörg þeirra sakna skólafélaganna og upplifa sig einangruð. Þess vegna köllum við eftir góðu samstarfi við stjórnvöld og þingmenn Suðurkjördæmis um að finna farsælar lausnir og vinna með okkur að velferð þessara barna. Jafnframt treystum við því að Fasteignafélagið Þórkatla muni gæta fyllsta jafnræðis og mismuni ekki íbúum eftir fjölskyldugerð, í samræmi við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

Framtíðarsýn okkar er skýr: Að öllum fyrrverandi eigendum húsnæðis verði gert kleift að flytja aftur í hús sín ef þeir svo kjósa, og að skólahald verði tryggt í haust. Við trúum því að með góðu samtali og samvinnu geti endurreisn hins þróttmikla samfélags í Grindavík hafist fyrir alvöru.

Bæjarstjórn Grindavíkur