Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
21. september 2026

Yfir 20 Grind­vísk fyr­ir­tæki á sam­eig­in­leg­um bás

Grindavík mætir af krafti á IceFish 2026. Yfir tuttugu fyrirtæki úr atvinnulífi Grindavíkur standa saman að einum sýningarbás.

Básinn er undir merkjum Grindavík - Saman í sókn og endurspeglar fjölbreytt atvinnulíf bæjarins. Básinn er að hluta byggður úr öryggisgirðingunum sem áður lokuðu götum og afmörkuðu svæði í Grindavík.

Á IceFish 2026 í Fífunni í Kópavogi, 22.–24. september, kemur Grindavík fram sem ein heild. Yfir tuttugu fyrirtæki taka þátt á sameiginlegum bás og sýna þá miklu breidd sem finna má í þjónustu við sjávarútveg og bláa hagkerfið í Grindavík.

Þar koma saman fyrirtæki úr ólíkum hlutum virðiskeðjunnar, allt frá sjávarútvegi, fiskeldi, tækni og drónum til hafnarþjónustu, flutninga, matvæla, ferðaþjónustu og veitingareksturs.

Hvert fyrirtæki fær sína framsetningu en öll deila þau sama útliti og sameiginlegri sögu. Útkoman er ekki röð af aðskildum fyrirtækjum heldur mynd af heili atvinnukeðju, fyrirtækjum sem starfa hvert á sínu sviði en mynda saman sterka heild.

Girðingarnar fá nýtt hlutverk

Hluti af umgjörð bássins á sér sérstaka sögu.

Bannerar fyrirtækjanna hanga á stálgrindum sem þjónuðu allt öðrum tilgangi fyrir skemmstu. Þetta eru öryggisgirðingar sem notaðar voru í Grindavík í tengslum við rýmingar og lokanir, grindur sem lokuðu götum og afmörkuðu svæði í bænum.

Nú loka þær engu. Nú segja þær sögu atvinnulífs sem horfir fram á veginn.

Á girðingunum verða einnig gömul veiðinet, korkflotlínur og glerkúlur úr búnaði grindvískra báta og tengja þannig saman sögu sjávarútvegsbæjarins og framtíð hans.

Þátttaka Grindavíkursamfélagsins á IceFish snýst um miklu meira en að kynna einstök fyrirtæki. Við viljum sýna þann kraft og þá fjölbreytni sem býr í atvinnulífinu og hvernig samstarf fyrirtækja getur orðið mikilvægur hluti af heildarendurreisn atvinnulífs og samfélags. Grindavík er mætt saman og Grindavík er opin fyrir viðskipti.

segir Pétur G. Markan, bæjarstjóri í Grindavík.

Líf og fjör á básnum

Sameiginlegi básinn verður ekki aðeins sýningarrými heldur lifandi samkomustaður alla þrjá sýningardagana þar sem fyrirtæki, samstarfsaðilar og gestir geta hist, kynnst starfseminni og rætt ný tækifæri.

Þriðjudaginn 22. september kl. 16:00 taka matreiðslumenn frá Bláa Lóninu yfir eldhúsið á básnum og bjóða gestum að smakka. Einnig verður súkkulaðismakk frá Neskju ásamt því að fá smakk af heimsfrægu humarsúpu Bryggjunnar. Þá verður einnig spennandi körfuboltaeinvígi og annað óvænt.

Fleiri viðburðir verða á dagskrá alla sýningardagana og eru gestir hvattir til að kíkja við og taka þátt. Gestir geta einnig spreytt sig í körfuboltakeppni og skorða fyrir Grindavík.

Komdu og hittu Grindavík

Sameiginlegi básinn er á D30 á einum besta stað sýningarinnar og verður miðpunktur fyrir þau sem vilja kynnast fyrirtækjum Grindavíkur, þjónustu þeirra og tækifærum til samstarfs.

Sýningin fer fram dagana 22.–24. september 2026 og er opið þriðjudag og miðvikudag 10:00-18:00 og á fimmtudag 10:00-17:00.