Fleiri en 1.550 störf í Grindavík í september
Alls eru 1.567 starfandi hjá þeim fyrirtækjum og stofnunum í Grindavík sem tóku þátt í talningu atvinnuteymis Grindavíkur í september.

Óskað var eftir upplýsingum frá fyrirtækjum og stofnunum um fjölda starfsfólks sem mættu til starfa í Grindavík 16. september og heildarfjölda stöðugilda. Alls bárust upplýsingar frá 67 fyrirtækjum og stofnunum.
Niðurstöðurnar sýna að fyrirtækin og stofnanirnar eru samanlagt með 1.567 stöðugildi og að 854 starfsmenn mættu til starfa í Grindavík þann dag sem talningin fór fram. Bæði störfum og starfsfólki á staðnum hefur fjölgað frá síðustu talningu í janúar.
Umsvifin aukast frá upphafi árs
Í samanburði við síðustu talningu, sem fór fram 7. janúar 2026, hefur fyrirtækjum og stofnunum í talningunni fjölgað um sjö. Starfsfólki sem mætti til vinnu í Grindavík hefur fjölgað um 71 og stöðugildum um 128.
Talningin nær til fimm starfssviða: ferðaþjónustu og veitinga, fiskeldis, iðnaðar og þjónustu, opinbers rekstrar og sjávarútvegs. Flest fyrirtæki í talningunni tilheyra iðnaði og þjónustu, alls 31, en 15 fyrirtæki eru í sjávarútvegi og 15 í ferðaþjónustu og veitingum.
Regluleg stöðumynd af atvinnulífinu
Tilgangur talningarinnar er að fylgjast með þróun atvinnulífsins í Grindavík og fá skýrari mynd af umfangi þeirrar starfsemi sem þar fer fram.
Niðurstöðurnar sýna aukin umsvif frá upphafi árs og gefa mikilvæga stöðumynd af atvinnulífinu í Grindavík haustið 2026. Reglulegar talningar gera kleift að fylgjast með þróuninni áfram og sjá hvernig störfum, starfsemi og viðveru starfsfólks í bænum vindur fram.


