Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
23. mars 2026

Vel heppnað ung­menna­þing í Grinda­vík

Þann 23. mars fór fram ungmennaþing í Kvikunni þar sem ungmenni úr Grindavík komu saman og ræddu framtíð bæjarins, vonir sínar og væntingar.

Umræður á þinginu voru líflegar og fram komu fjölmargar áhugaverðar hugmyndir um samfélagið, skólamál, tómstundir, aðstöðu og þátttöku ungmenna í uppbyggingu bæjarins.

Þá áttu ungmennin einnig samtal við forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur og Björn Skúlason sem ræddu við þau um Grindavík, lýðræðislega þátttöku og tækifæri ungmenna úr Grindavík.

Á næstu vikum verður unnið markvisst úr þeim tillögum sem komu fram á þinginu. Ungmennaráð mun í framhaldinu funda með bæjarstjórn þar sem hugmyndir og áherslur ungmenna verða kynntar.

Myndir frá þinginu má sjá á Facebook síðu Grindavíkurbæjar.

Grindavíkurbær þakkar öllum þátttakendum fyrir mikilvægt framlag til uppbyggingar Grindavíkur.

Hljómsveitin Niceguys kom fram á þinginu við góðar undirtektir