Undirbúningur hafinn fyrir Fjörugan föstudag
Fjörugur föstudagur er á næsta leiti en hátíðin fer fram föstudaginn 27. nóvember í ár.

Þótt enn sé nokkuð í jólin er ekki seinna vænna fyrir fyrirtæki, stofnanir og félög í Grindavík að fara að leggja höfuðið í bleyti og undirbúa skemmtilegan dag.
Fjörugur föstudagur hefur fyrir löngu fest sig í sessi í Grindavík og verður að sjálfsögðu með kunnuglegu sniði í ár. Jólastemningin verður allsráðandi, jólasveinarnir kíkja í bæinn og fyrirtæki og stofnanir leggja sitt af mörkum til að skapa líf og fjör um allan bæ.
Fjörugur föstudagur er samstarfsverkefni fyrirtækja og stofnana í Grindavík og eru öll sem vilja taka þátt hvött til að vera með, hvort sem það eru viðburðir, uppákomur, opin hús, tilboð eða eitthvað allt annað. Því fjölbreyttari dagskrá, því fjörugri föstudagur.
Þau sem vilja taka þátt eða eru þegar farin að leggja á ráðin geta haft samband við Ragnheiði Þóru Ólafsdóttur, antoni@simnet.is, eða Eggert Sólberg Jónsson, eggert@grindavik.is.
Sameiginleg dagskrá verður síðan kynnt þegar nær dregur.


