Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
13. október 2026

Tök­um þátt í Fjör­ug­um föstu­degi

Fjörugur föstudagur fer fram föstudaginn 27. nóvember í ár og verður að venju boðið upp á fjölbreytta dagskrá.

Undirbúningur er hafinn og fyrirtæki, verslanir, stofnanir og félagasamtök eru hvött til að taka þátt og leggja sitt af mörkum til að skapa líf og jólastemningu um allan bæ.

Fjörugur föstudagur hefur fyrir löngu fest sig í sessi í Grindavík og verður með kunnuglegu sniði í ár. Jólasveinarnir verða á ferðinni og vonir standa til að sem flest fyrirtæki og félög taki þátt með opnum húsum, skemmtilegum uppákomum, jólatilboðum eða öðrum viðburðum.

Sölu- og kynningarbásar í Kvikunni

Í Kvikunni verða settir upp sölu- og kynningarbásar þar sem félagasamtök, Grindvíkingar og þau sem tengjast Grindavík geta kynnt starfsemi sína eða boðið vörur til sölu. Áhugasöm eru hvött til að hafa samband við Eggert Sólberg Jónsson á netfangið eggert@grindavik.is.

Tilkynnið þátttöku sem fyrst

Þau sem hyggjast taka þátt í Fjörugum föstudegi og vilja koma sínum viðburðum eða uppákomum á sameiginlega dagskrá eru hvött til að hafa samband sem fyrst við Ragnheiði Þóru Ólafsdóttur á antoni@simnet.is eða Eggert Sólberg Jónsson á eggert@grindavik.is.

Sameiginleg dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.