Tímabundin lokun á Grindavíkurvegi
Vegna malbikunarframkvæmda verður hringtorgið við Vogastapa, sunnan Reykjanesbrautar, lokað hluta úr degi fimmtudaginn 9. júlí.
Lokað verður á eftirfarandi tímum:
- Fimmtudaginn 9. júlí kl. 12:00–16:00
Á meðan framkvæmdum stendur verður Grindavíkurvegi lokað á kaflanum milli Reykjanesbrautar og Bláa Lónsins.
Vegfarendur sem eiga leið til og frá Grindavík eru beðnir um að nota Hafnaveg/Nesveg eða Krýsuvíkurveg/Suðurstrandarveg á meðan lokanirnar eru í gildi.
Ökumenn eru beðnir um að sýna aðgát og gera ráð fyrir lengri aksturstíma á meðan framkvæmdunum stendur.
Athugasemd 8. júlí kl. 16:50: Grindavíkurvegur verður EKKI lokaður föstudaginn 10. júlí eins og áður hafði verið auglýst.


