Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
12. maí 2026

Til­laga að starfs­leyfi fyr­ir Matorku ehf. Húsa­tóft­um

Umhverfis- og orkustofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Matorku ehf. að Húsatóftum vestan Grindavíkur.

Um er að ræða landeldi á laxfiskum með allt að 200 tonna hámarkslífmassa.

Matorka er með gilt starfsleyfi sem markaður er gildistími til 10. september 2026. Ekki er um að ræða breytingu á starfsemi frá eldra starfsleyfi. Framkvæmdin er ekki háð umhverfismati skv. lögum nr. 111/2021.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is, merktar  UOS2506227. Athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Nánari upplýsingar og tengd skjöl er að finna á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 10. júní nk.