Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
13. apríl 2026

Kjör­stjórn stað­fest­ir þrjú fram­boð í Grinda­vík

Kjörstjórn hefur lokið fundi þar sem farið var yfir framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 16. maí 2026.

Alls bárust þrjú framboð: B-listi Framsóknarflokksins, D-listi Sjálfstæðisflokksins og M-listi Miðflokksins.

Niðurstaða kjörstjórnar er sú að allir listarnir teljast gild framboð, þar sem fullnægjandi og lögbundin gögn bárust innan tilskilins frests.