Þjóðminjasafnið safnar frásögnum tengdum Grindavík
Grindvíkingar og öll þau sem tengjast Grindavík eru hvött til að deila minningum sínum og reynslu af jarðhræringunum og atburðum síðustu ára.

Þjóðminjasafn Íslands, í samstarfi við Grindavíkurbæ og Minja- og sögufélag Grindavíkur, safnar nú upplýsingum um viðhorf og upplifanir fólks af jarðhræringum á Reykjanesskaga sem staðið hafa yfir frá árinu 2020.
Sérstök áhersla er lögð á tímabilið fyrir og eftir rýmingu Grindavíkur 10. nóvember 2023. Atburðirnir sem Grindvíkingar hafa gengið í gegnum síðan þá eru sérstæðir í sögu Íslands og mikilvægt er að varðveita frásagnir þeirra sem hafa upplifað þá.
Markmiðið er að safna fjölbreyttum heimildum um reynslu fólks og varðveita þær til framtíðar. Spurt er meðal annars um tengsl fólks við Grindavík, jarðskjálfta og eldgos, rýminguna 10. nóvember 2023, tímann eftir rýmingu, viðbrögð samfélagsins og stöðuna í Grindavík í dag.
Öll sem hafa tengsl við atburðina eru hvött til að taka þátt. Spurningaskráin er ítarleg en ekki þarf að svara öllum spurningum. Hægt er að svara þeim spurningum sem höfða til hvers og eins og vista svör til að halda áfram síðar.
Með þátttöku gefst fólki tækifæri til að varðveita sína eigin reynslu sem hluta af sögu Grindavíkur og þeim einstöku atburðum sem samfélagið hefur gengið í gegnum.


