Styttist í opnun Bókasafns Grindavíkur
Unnið hefur verið hörðum höndum í sumar að opnun Bókasafns Grindavíkur.

Anna María Cornette var fyrr í sumar ráðin forstöðumaður safnsins og hefur hún staðið í ströngu við undirbúning opnunarinnar. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á safninu, meðal annars með tilfærslum innan þess og endurskipulagningu rýma.
Bókasafnið mun opna fyrir nemendur Grunnskóla Grindavíkur samhliða upphafi skólastarfs. Unnið verður áfram að undirbúningi næstu vikurnar en opnun fyrir almenning verður auglýst í september.
Anna María býr yfir víðtækri reynslu af bókasafns- og menningarstarfi. Hún starfaði um árabil hjá Bókasafni Reykjanesbæjar, fyrst sem deildarstjóri barna- og ungmennastarfs og verkefnastjóri fjölmenningar og síðar sem verkefnastjóri þróunar og miðlunar, sýningahalds og fjölmenningar. Hún hefur einnig starfað á Bókasafni Kópavogs, Lindasafni og nú síðast við Byggðasafnið á Garðskaga.
Anna María er með MA-gráður í safnafræði og hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands auk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Þá stundar hún nú meistaranám í upplýsingastjórnun og upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Með opnun bókasafnsins bætist mikilvæg þjónusta á ný við starfsemina í Grindavík. Nánari upplýsingar um opnun fyrir almenning og opnunartíma safnsins verða birtar í september.


