Stóraukið frístundastarf barna og ungmenna
Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt áætlun um uppbyggingu frístundastarfs fyrir börn og ungmenni í Grindavík.

Markmiðið er að fjölbreytt frístunda- og félagsstarf standi börnum og ungmennum til boða alla virka daga eftir að skóla lýkur og fram til kl. 17. Stefnt er að því að koma starfseminni af stað eins fljótt og kostur er.
Áætlunin hefur verið unnin í samráði við börn og ungmenni, foreldra, starfsfólk og stjórnendur stofnana sveitarfélagsins og aðra hagaðila. Niðurstöður samráðsins sýna skýran áhuga á auknu frístundastarfi í Grindavík. Börn og ungmenni vilja hafa meira að gera í bænum, bæði hvað varðar íþróttir, félagsstarf og skapandi starf, en jafnframt geta áfram sótt æfingar og annað starf utan Grindavíkur.
Íþróttamannvirkin hjarta frístundastarfsins
Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar verða meginvettvangur frístundastarfsins og er stefnt að því að þau verði opin alla virka daga frá kl. 8–18 í vetur. Sérstök áhersla verður lögð á tímann frá kl. 14–17 þegar skóladegi lýkur.
Íþróttasalur, sundlaug og önnur aðstaða verður nýtt undir skipulagt íþróttastarf, félagsstarf, opna hreyfingu og aðra afþreyingu.
Gert er ráð fyrir samstarfi við félagasamtök í Grindavík um fjölbreytt starf þar sem börn fá tækifæri til að kynnast og taka þátt í ólíkum tómstundum.
Þruman og bókasafnið mikilvægur hluti starfsins
Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar verður tímabundið færð í íþróttamannvirkin og þar er stefnt að félagsmiðstöðvarstarfi alla virka daga kl. 14–17. Jafnframt verður gert ráð fyrir kvöldopnunum og viðburðum sem mótaðir verða í samráði við börn og ungmenni.
Áhersla verður lögð á virka þátttöku þeirra í þróun starfsins. Nemendaráð verður starfrækt í samstarfi við Grunnskóla Grindavíkur og unnið verður að því að koma á fót ungmennaráði Grindavíkur.
Bókasafn Grindavíkur verður einnig mikilvægur hluti af frístundaframboðinu. Þar verður meðal annars sett upp bókabíó á fimmtudögum, safnkostur fyrir börn og ungmenni aukinn, hlaðvarps- og upptökuaðstöðu komið fyrir og byggt upp sköpunarrými fyrir ýmis verkefni.
Undirbúningur þegar hafinn
Næstu skref felast meðal annars í ráðningu starfsfólks og nánari útfærslu starfsins í samstarfi við þá aðila sem að því koma. Stefnt er að því að frístundastarfið geti hafist eins fljótt og kostur er og verða nánari upplýsingar um fyrirkomulag og tímasetningar kynntar þegar þær liggja fyrir.
Samhliða verður áfram unnið að því að auka fjölbreytni í frístundastarfi barna og ungmenna í Grindavík og skapa fleiri valkosti sem höfða til mismunandi áhugasviða.
Einnig verður unnið að því að bæta aðstöðu og búnað fyrir börn og ungmenni. Uppbyggingin verður unnin í áföngum og tekur mið af reynslu af starfinu, þátttöku og áhuga barna og ungmenna og nýtingu þeirrar aðstöðu sem þegar er til staðar.
Markmiðið er að börn og ungmenni í Grindavík hafi fjölbreytta möguleika til hreyfingar, félagsstarfs, sköpunar og samveru í sínu nærumhverfi og að frístundastarfið þróist áfram með þeirra þarfir og áhuga að leiðarljósi.


