Starfsmaður óskast í íþróttamannvirki
Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar auglýsa eftir öflugum og þjónustulunduðum starfsmanni í starf sundlaugarvarðar.

Um er að ræða allt að 80% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér öryggisgæslu við sundlaug, klefavörslu, afgreiðslu og þjónustu við notendur, þrif og vinnu á kappleikjum og öðrum viðburðum.
Leitað er að ábyrgum og jákvæðum einstaklingi með ríka öryggisvitund og góða samskiptahæfni. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og geta staðist hæfnispróf sundlaugarvarða. Vegna klefavörslu er starfið ætlað karlmanni.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík.
Nánari upplýsingar og umsókn eru á ráðningarvef Grindavíkurbæjar.


