Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
18. ágúst 2026

Skóla­daga­töl leik- og grunn­skóla Grinda­vík­ur 2026–2027

Skólastarf er að hefjast að nýju eftir sumarfrí og skóladagatöl leik- og grunnskóla Grindavíkur fyrir skólaárið 2026–2027 liggja nú fyrir.

Leikskólastarf hófst 10. ágúst þegar fyrstu börnin mættu í aðlögun. Grunnskóli Grindavíkur verður settur þriðjudaginn 25. ágúst kl. 9:00 og hefst kennsla að lokinni skólasetningu. Athygli er vakin á því að fjölmiðlum verður ekki heimilt að mæta á skólasetninguna eða fyrstu vikurnar eftir að skólastarf hefst.

Á skóladagatölunum leik- og grunnskóla má meðal annars sjá skipulagsdaga, frídaga og aðra mikilvæga daga í skólastarfinu yfir veturinn. Á leikskóladagatalinu má jafnframt finna skráningardaga og upplýsingar um sumarlokun næsta sumar.

Helstu dagsetningar í leikskóla

  • 21. september: Skipulagsdagur
  • 24. nóvember: Skipulagsdagur
  • 21.–23. og 28.–30. desember: Skráningardagar
  • 4. janúar: Skipulagsdagur
  • 25. febrúar: Skipulagsdagur
  • 22.–24. mars: Skráningardagar
  • 21. maí: Skipulagsdagur
  • 27. maí: Útskrift og vorhátíð
  • 7. júlí kl. 14:00: Sumarlokun hefst
  • 5. ágúst kl. 10:00: Leikskólinn opnar aftur eftir sumarfrí

Helstu dagsetningar í grunnskóla

  • 25. ágúst: Skólasetning kl. 9:00 og kennsla hefst að henni lokinni
  • 21. september: Skipulagsdagur
  • 24. nóvember: Skipulagsdagur
  • 18. desember: Litlu jólin
  • 5. janúar: Fyrsti skóladagur eftir jólafrí
  • 4. janúar: Skipulagsdagur
  • 25. febrúar: Skipulagsdagur
  • 25.–29. mars: Páskafrí
  • 21. maí: Skipulagsdagur
  • 4. júní: Skólaslit

Skipulagsdagar leik- og grunnskólans eru því samræmdir og verða 21. september, 24. nóvember, 4. janúar, 25. febrúar og 21. maí.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kynna sér skóladagatölin vel en þar má finna nánari upplýsingar um skólastarfið og fleiri mikilvægar dagsetningar.

Skóladagatal leikskóla 2026–2027

Skóladagatal grunnskóla 2026–2027