Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
9. október 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 9. októ­ber 2026: Stór­hug­ur í Grinda­vík

Sumarið er liðið og það hefur verið viðburðaríkt í Grindavík. Mikið hefur gerst á síðustu mánuðum og góður árangur hefur náðst.

Í upphafi kjörtímabilsins ákváðu allir bæjarfulltrúar að vinna saman og gerðu með sér samfélagssáttmála um framtíð Grindavíkur. Þar var lagt upp með samstöðu, öryggi, traust, virðingu og seiglu og fyrir fyrstu sex mánuðina var sett skýr forgangsröðun. Að ráða nýjan bæjarstjóra og styrkja stjórnsýsluna, efla grunnþjónustu, vinna að lausnum í húsnæðismálum, halda áfram vinnu við öryggisáætlanir og eiga reglulegt samráð við íbúa. 

Á þessum atriðum hefur verið tekið. Nýr bæjarstjóri, Pétur G. Markan, hefur nú starfað í þrjá mánuði, og mikil ánægja er með þann kraft og þá jákvæðni sem hann hefur komið með inn í bæjarfélagið. Leik- og grunnskólar eru teknir til starfa og lifandi áhættumat, sem sáttmálinn kveður á um, er komið í gagnið og aðgengilegt öllum. 

Nú er vinna við fjárhagsáætlun næsta árs hafin. Þar verða áherslur sáttmálans útfærðar í verki. Það sem einkennir undirbúninginn er stórhugur. Óskirnar og hugmyndirnar sem lagðar eru fram sýna að Grindvíkingar eru enn stórhuga og horfa fram á veginn. Enginn bilbugur er á fólki. 

Um leið þarf að horfa raunsætt á stöðuna. Tekjur bæjarins hafa dregist saman, meðal annars vegna lægri fasteignagjalda. Það kallar á skýra forgangsröðun og ábyrga meðferð fjármuna. En þröng staða og stórhugur fara vel saman þegar markmiðin eru skýr og samstaðan sterk. 

Við hvetjum Grindvíkinga til að halda áfram að láta í sér heyra. Fjárhagsáætlunin á að endurspegla bæinn sem við viljum byggja saman. 

Framtíð Grindavíkur er björt, og hún er í okkar höndum. 

Bæjarstjórn Grindavíkur