Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
26. mars 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 26. mars 2026: Líf í bæn­um, aukin þjón­usta og und­ir­bún­ing­ur fyr­ir haust­ið

Á fundi bæjarráðs fyrr í vikunni var farið yfir margvísleg mál sem snerta daglega þjónustu, mannlíf og framtíðaruppbyggingu í Grindavík.

Við viljum deila með ykkur helstu punktunum af þeim fundi, enda er margt jákvætt að gerast sem miðar að því að auka lífsgæði þeirra sem dvelja í bænum og undirbúa komandi vetur. 

Líf og fjör á höfninni  

Við byrjum á virkilega gleðilegum fréttum, en góður gangur er í löndun á höfninni okkar. Nú þegar er búið að landa meiri afla á fyrstu þremur mánuðum ársins en gert var á sama tímabili bæði árin 2024 og 2025. 

Öflugur stuðningur við félagslífið  

Grindavíkurbær heldur áfram að styðja þétt við bakið á þeim félagasamtökum í Grindavík sem hafa haldið uppi starfsemi þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Þar munar mestu um stóran samning við UMFG, en beinir styrkir til félagsins nema rúmum 150 milljónum króna frá rýmingu, auk stuðnings vegna leigu á aðstöðu utan Grindavíkur og íbúðarhúsnæðis. Einnig hefur bærinn stutt dyggilega við Brimfaxa, Golfklúbb Grindavíkur, unglingadeildina Hafbjörgu, Félag eldri borgara, Grindavíkurdætur og Kvenfélag Grindavíkur. 

Líkamsrækt, lengri opnunartími og heiðursveggur  

Við vitum að íþrótta- og heilsuefling skiptir samfélagið okkar gríðarlegu máli. Bæjarráð samþykkti fjárveitingu til þess að hægt verði að fjölga opnunardögum í íþróttamannvirkjunum. Sundlaugin verður því opin á fleiri frídögum en áður hafði verið gert ráð fyrir.  

Þá samþykkti bæjarráð áframhaldandi leigusamning við Gym heilsu um rekstur líkamsræktar í íþróttamannvirkjum bæjarins.  

Loks voru samþykktar reglur fyrir nýjan „Heiðursvegg íþróttanna í Grindavík“ og munu forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs taka sæti í heiðursráðinu fyrir hönd bæjarins. 

Unnið að skólahaldi í haust

Áfram er unnið ötullega að undirbúningi fyrir mögulegt skólahald haustið 2026. Bæjarráð fór yfir framvindu málsins, en samhliða þeirri vinnu er nú verið að skoða hvernig best verður staðið að allri annarri starfsemi á frístunda- og menningarsviði í tengslum við skólahaldið, svo að börn og ungmenni fái sem heildstæðasta þjónustu. 

Á fundinum var farið yfir kynningu á ráðningarferli fyrir nýjan skólastjóra sem stýra mun skólahaldi í haust. 

Íbúðir fyrir eldri borgara í Víðihlíð  

Bæjarráð samþykkti tillögur að leiguverði fyrir íbúðir aldraðra í Víðihlíð. Mjög fljótlega verður svo útleigan í Víðihlíð kynnt nánar og farið yfir hvernig staðið verður að úthlutun þeirra. 

Sagan varðveitt

Að lokum má nefna að tekin var fyrir beiðni um styrk til gerðar heimildarmyndar og söfnunar heimilda um rýmingu Grindavíkur í nóvember 2023. Það er mikilvægt að halda til haga þessum sögulegu atburðum fyrir komandi kynslóðir.  

Með kveðju,

Bæjarstjórn Grindavíkur