Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
19. mars 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 19. mars 2026 - Nýr vef­ur, ung­menna­þing og deild­ar­meist­arar

Hér er stutt yfirlit yfir það helsta sem er að gerast í stjórnsýslunni og samfélaginu okkar þessa vikuna. 

Ný heimasíða og opnun tjaldsvæðis  

Ný og endurbætt heimasíða Grindavíkurbæjar er nú komin í loftið. Markmiðið er að auðvelda íbúum að finna upplýsingar og fylgjast með því sem er að gerast. Einnig var tjaldsvæði bæjarins opnað á ný núna á mánudaginn, 16. mars, og stefnt er að því að hafa það opið fram í nóvember. 

Framvinda í skólamálum  

Umsóknarfrestur um nýja stöðu skólastjóra við samrekinn leik- og grunnskóla rann út í byrjun vikunnar. Sex umsóknir bárust um stöðuna. Á þriðjudaginn áttum við jafnframt upplýsandi og gott samtal við foreldra í Kvikunni um mögulegt skólastarf á komandi hausti. 

Ungmennaþing á laugardaginn  

Við minnum á ungmennaþingið sem fram fer fram í Kvikunni næstkomandi laugardag. Þar gefst ungmennum, 13 ára og eldri, tækifæri til að ræða framtíðina, skólamál, tómstundir og öryggi. Við hvetjum ungmenni til að mæta, láta í sér heyra og njóta dagskrárinnar. 

Kosningaréttur í vor – Frestur til 1. apríl  

Fyrrum íbúar Grindavíkur sem vilja kjósa í sveitarstjórnarkosningunum í vor þurfa að sækja sérstaklega um það til Þjóðskrár fyrir 1. apríl næstkomandi. Umsóknin er rafræn og við hvetjum fólk til að kynna sér málið á nýju heimasíðunni okkar. 

Íbúðir í Víðihlíð fyrir eldri borgara  

Í næstu viku verður lögð fram tillaga í bæjarráði um að leigja út íbúðir í Víðihlíð fyrir eldri borgara. Lengi hefur verið unnið að þessu mikilvæga verkefni og verður það auglýst og kynnt mun betur fyrir páska. 

Áfram Grindavík!

Að lokum viljum við senda okkar innilegustu hamingjuóskir til meistaraflokks karla í körfubolta sem tryggði sér deildarmeistaratitilinn í síðustu viku eftir magnaðan sigur á Stjörnunni. Þvílík seigla! 

Með kveðju,  

Bæjarstjórn Grindavíkur