Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
26. febrúar 2026

Kosn­inga­rétt­ur í Grinda­vík

Alþingi samþykkti á dögunum bráðabirgðalög sem heimila fyrrum íbúum Grindavíkur að sækja um að vera teknir á kjörskrá í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningum sem fara fram þann 16. maí 2026.

Þessi breyting hefur eingöngu áhrif á þá einstaklinga sem höfðu lögheimili í Grindavík þann 9. nóvember 2023 og eru ekki með lögheimili í sveitarfélaginu að svo stöddu. Þannig þurfa þeir sem eru með lögheimili í Grindavík ekki að sækja um.

Á vef Þjóðskrár má finna svör við helstu spurningum sem upp kunna að koma.

Frestur til að skila inn umsókn rennur út þann 1. apríl nk.

  • Umsóknin er að finna á vef Þjóðskrár. Umsóknin er rafræn og þarf að nota rafræna innskráningu. Hægt er að nota Auðkennisappið eða rafræn skilríki á síma.
  • Þeir sem uppfylla skilyrði um búsetu 9.11.2023 og ásamt almennum skilyrðum um kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum fá staðfestingu á kosningarétti í Grindavík þegar umsókn hefur verið send inn.
  • Athugið að umsókn um að vera tekinn á kjörskrá í Grindavík telst afsal á kosningarétti í lögheimilissveitarfélagi
  • Þeir sem ekki hafa tök á að sækja um rafrænt geta sent erindi á netfangið kosningar@skra.is og fengið leiðbeiningar um annað umsóknarferli

Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 515-5300 eða með tölvupósti á kosningar@skra.is