Pistill bæjarstjórnar 20. maí 2026: Kosningar að baki og spennandi störf í boði
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram um helgina og viljum við byrja á því að þakka ykkur fyrir þátttökuna. Kosningarnar sýna lýðræðið okkar í verki.

Nú standa yfir viðræður um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn sem mun brátt taka til starfa og leiða sveitarfélagið næstu árin.
En þótt pólitískar samræður taki sinn tíma, þá stöðvast ekki starfsemi sveitarfélagsins á meðan. Það er mikill kraftur í stjórnsýslunni og daglegum rekstri, enda okkar helsta markmið að halda áfram að byggja upp samfélagið okkar.
Til marks um þennan kraft höfum við nýlega auglýst eftir öflugu fólki til liðs við okkur í fjölbreytt og spennandi störf hjá bænum. Framundan er gríðarlega mikilvægt verkefni við að endurreisa grunnþjónustu og mannlíf í bænum og til þess þurfum við framúrskarandi mannskap.
Eins og staðan er núna erum við meðal annars að leita að fólki í eftirfarandi lykilstörf:
- Leik- og grunnskólakennurum: Nýr samrekinn leik- og grunnskóli í Grindavík tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi. Við leitum að öflugu fólki sem vill taka þátt í því spennandi verkefni að endurbyggja metnaðarfullt skólastarf, þar sem skapandi skólastarf og vellíðan nemenda verður í fyrirrúmi.
- Félagsráðgjafa: Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf (80-100% starfshlutfall) þar sem áhersla er lögð á faglega þjónustu í þágu einstaklinga og fjölskyldna á þessum mikilvægu uppbyggingartímum í Grindavík.
- Forstöðumanni Bókasafns Grindavíkur: Skapandi starf þar sem áhersla er á þjónustu við íbúa á öllum aldri – sérstaklega börn og ungmenni – auk virkrar þátttöku í menningar- og samfélagsverkefnum sveitarfélagsins.
Á næstunni munum við auglýsa eftir starfsfólki í íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar enda gerum við ráð fyrir lengri opnunartíma í haust þegar börnum fjölgar í sveitarfélaginu.
Öll þessi störf eru stór púsl í þá mynd sem við erum að teikna upp fyrir framtíð Grindavíkur. Við hvetjum öll þau sem hafa brennandi áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar – til að sækja um.
Allar nánari upplýsingar og umsóknarform má finna á ráðningarvef bæjarins.
Umsóknarfrestur um öll þessi störf er til 31. maí 2026. Við viljum biðja ykkur um að deila þessum auglýsingum áfram svo við fáum sem allra bestan hóp til að leiða þessa mikilvægu þjónustu.
Óskum ykkur góðrar og orkumikillar viku!
Grindavíkurbær


