Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
16. október 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 16. októ­ber 2026: Gisti­heim­ild holl­vina fram­lengd

Bæjarstjórn kallar eftir fyrirsjáanleika og kynningu á áætlun fasteignafélagsins Þórkötlu.

Þórkatla hefur tilkynnt að gistiviðaukar við hollvinasamninga verði framlengdir óbreyttir um þrjá mánuði, til 31. janúar næstkomandi. Tæplega 300 Grindvíkingar eru með virkan hollvinasamning og um 175 þeirra með gistiviðauka. Við fögnum því að heimildin haldist.

Við vitum þó, og heyrum það á bæjarbúum, að margir eru orðnir þreyttir á því að heimildin sé aðeins framlengd nokkra mánuði í senn. Það er erfitt að skipuleggja heimilislíf, vinnu og skólagöngu barna þegar sjóndeildarhringurinn nær aldrei lengra en til næstu mánaðamóta. Við hvetjum Þórkötlu til að horfa lengra fram í tímann við næstu ákvörðun.

Vert er að minna forráðamenn Þórkötlu á meirihlutaálit efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sem fylgdi lögum Þórkötlu úr hlaði en þar er þetta sagt um umgengnisrétt seljenda:

Meirihlutinn telur heppilegast að það verði gert í góðri samvinnu við seljendur og að jafnframt verði tekið tillit til sjónarmiða þeirra.

Mikilvægt er að […] skapa forsendur fyrir öruggri framtíð fyrir Grindvíkinga og eyða þeirri óvissu sem náttúruhamfarirnar hafa haft í för með sér.

Þórkatla segist eiga í samtali við stjórnvöld um lagabreytingar og að  endurkaupaáætlun félagsins verði kynnt þegar niðurstaða liggur fyrir. Við bíðum þeirrar kynningar með eftirvæntingu, eins og bæjarbúar allir. Ekkert stendur þó í vegi fyrir því að kynna áætlunina strax, svo samtalið geti hafist, sem jafnframt gæfi tækifæri til samráðs við Grindvíkinga um útfærslu lagabreytinga. Þegar hagsmunir 900 heimila liggja undir er viðbúið að skoðanir og þarfir séu ólíkar. Því fyrr sem tillögurnar eru kynntar og ræddar, því fyrr er hægt að hefjast handa.

Við minnum á að Þórkatla var ekki stofnuð til að vera eignarhaldsfélag. Markmið félagsins á að vera, eins og kom fram við stofnun þess, að stuðla að farsælli endurkomu og blómlegri byggð í Grindavík. Eins og segir í fyrstu grein laga um Þórkötlu:

Markmið laga þessara er að verja fjárhag og velferð íbúa í Grindavíkurbæ...

Þórkatla leggur sjálf ríka áherslu á að vernda húsin og viðhalda verðmæti þeirra, eins og lesa má á vef félagsins um viðhald húsa. Ekkert viðhald jafnast þó á við að líf sé í húsunum og að eigendur geti sinnt þeim sjálfir.

Endurkaupin eru lykilskref í endurreisn samfélagsins í Grindavík. Við erum tilbúin í það samtal, hvenær sem Þórkatla er tilbúin.

Bæjarstjórn Grindavíkur