Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
11. júní 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 11. júní 2026: Áfram höld­um við bar­átt­unni

Við viljum byrja á því að þakka ykkur kærlega fyrir frábæra sjómannadagshelgi.

Sjóarinn síkáti heppnaðist afar vel í eindæma sól og blíðu og var sérstaklega ánægjulegt að sjá jafn mikla þátttöku bæjarbúa og gesta og hvernig bæjarlífið tók við sér. Metnaður okkar stendur til þess að gera hátíðina enn veglegri á næsta ári.  

Með hækkandi sól og sumri eykst fjöldi gesta í bænum. Það er ástæða til að minna á að tjaldsvæðið í Grindavík er frábær valkostur fyrir þá sem vilja dvelja hér og kanna svæðið. Tjaldsvæðið hefur verið meira og minna fullt alla daga, sem er dásamleg staðfesting á því lífi sem er að færast yfir bæinn okkar. 

Húsnæðismálin: Skortur á vilja yfirvalda  

Við vitum að húsnæðismálin hvíla mjög þungt á fólki um þessar mundir og við höldum áfram að pressa stíft á þau mál. Á fundi um húsnæðismál með Þórkötlu fyrr í vikunni kom það beinlínis fram að það skorti einfaldlega vilja réttra aðila í húsnæðismálunum. Þetta staðfestir það sem okkur hefur grunað – að það eru stjórnvöld sjálf sem standa á bremsunni og hindra eðlilega framvindu og lausnir fyrir íbúa. Bæjaryfirvöld hafa því formlega óskað eftir fundi með forsætisráðherra til að knýja á um svör og aðgerðir og erum við í stöðugu samtali við þingmenn til að fylgja málinu eftir. 

Skólamálin og heimsókn úr ráðuneytinu  

Menntamálaráðuneytið sendi okkur nýverið spurningar varðandi áform okkar um skólahald í haust. Við höfum meðal annars brugðist við því með því að bjóða fulltrúum ráðuneytisins einfaldlega í heimsókn til okkar. Þar munum við sýna þeim þá glæsilegu aðstöðu leik- og grunnskóla sem við höfum upp á að bjóða í bænum og væntanlega fá þeir svör við öllum sínum spurningum. 

Endurskoðun áhættumats í fullum gangi  

Í byrjun vikunnar funduðu bæjarstjórn og sviðsstjórar með Skarphéðni Berg Steinarssyni, tengilið forsætisráðuneytisins, þar sem framgangur nýs áhættumats og húsnæðismál voru efst á baugi. Eins og lagt var til í skýrslum Grindavíkurnefndar og Alþjóðabankans er nú unnið að endurskoðun áhættumats í gegnum vinnustofur með fjölbreyttum hópi þátttakenda. Markmiðið er að bæta aðferðafræði og framsetningu matsins þannig að það nýtist betur sem grundvöllur ákvarðanatöku. Leitað er eftir sjónarmiðum heimamanna og annarra hagaðila til að tryggja víðtækt samráð. Dagana 18. og 19. júní verða niðurstöður vinnustofanna teknar saman á sérstökum vinnufundum undir stjórn sérfræðinga Alþjóðabankans. 

Að lokum...  

Við viljum minna á tvær nýjar fréttir á heimasíðu bæjarins. Annars vegar er formlega búið að auglýsa eftir traustum og farsælum leiðtoga til að gegna stöðu bæjarstjóra, sem mun leiða stjórnsýsluna á komandi misserum. Hinsvegar fréttina um Heiðursvegg íþróttanna en á þjóðhátíðardaginn, 17. júní kl. 11:00, verður tilkynnt hvaða einstaklingar verða fyrstir til að hljóta sess á þessum nýjum heiðursvegg, við hátíðlega athöfn í Gjánni. 

Áfram höldum við baráttunni! 

Með kveðju, Bæjarstjórn Grindavíkur