Pistill bæjarstjórnar 10. apríl 2026: Góðir sigrar og ný tækifæri
Hér kemur yfirlit úr bænum okkar yfir það helsta sem er að gerast í vikunni. Mörg verkefni eru að komast á skrið og mannlífið blómstrar sem aldrei fyrr.

Skýrsla Grindavíkurnefndar birt
Grindavíkurnefnd hefur nú lokið vinnu við ítarlega rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur. Skýrslan hefur verið kynnt ríkisstjórn og verður í fljótlega gerð opinber. Bæjaryfirvöld munu að sjálfsögðu rýna vel í hana og kynna helstu niðurstöður og næstu skref fyrir íbúum eins fljótt og auðið er.
Körfuboltaveislan heldur áfram og Valur sendur í sumarfrí!
Íþróttirnar halda áfram að færa okkur gleðifréttir og sýna þá ótrúlegu seiglu sem býr í samfélaginu. Meistaraflokkur kvenna í körfu hefur verið í sviðsljósinu og unnu glæsilegan 72-90 sigur á Val á fimmtudag. Með þeim sigri tryggðu þær sér 3-0 sigur í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Bónus deildarinnar og sópuðu þar með Valskonum beint í sumarfrí. Stelpurnar eru því komnar örugglega áfram í undanúrslit og við hvetjum alla Grindvíkinga til að fylgjast með og styðja okkar fólk í baráttunni sem framundan er! Þann 6. apríl gerði meistarafokkur karla í knattspyrnu í Grindavík sér svo lítið fyrir og sló út Keflavík í 32. liða úrslitum í Mjólkurbikarnum.
Íbúðir í Víðihlíð auglýstar til leigu
Lengi hefur verið unnið að því að koma íbúðum fyrir eldri borgara í Víðihlíð aftur í gagnið og þann 1. apríl síðastliðinn gátum við loksins auglýst þær lausar til umsóknar. Um er að ræða 12 íbúðir að Austurvegi 5, átta stærri og fjórar minni. Þetta er stór og gleðilegur áfangi.
Sveitarstjórnarkosningar: Framboðsfrestur rann út föstudaginn 10. apríl
Skilafrestur framboða vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara þann 16. maí nk., rann út á hádegi föstudaginn 10. apríl. Á kjörskrá eru samtals 1.118 kjósendur og þar af eru 739 með lögheimili í Grindavík. Það segir okkur að 379 kjósendur skráðu sig sérstaklega til þess að kjósa í bænum okkar. Þess ber að geta að frestur fyrir brottflutta Grindvíkinga til að sækja um kosningarétt í bænum rann út þann 1. apríl sl..

Nýtt listagallerí í verslunarmiðstöðinni
Glerlistakonan Hildur (Hidda Design Collection) hefur opnað nýtt og glæsilegt listagallerí í verslunarmiðstöðinni sem við hvetjum fólk til að kíkja á. Hildur Símonardóttir glerlistakona hefur unnið með gler síðan árið 2001. Árið 2007 hóf hún hönnun á glerskartgripum undir vörumerkinu Hidda design. Skartgripirnir hafa notið mikillar velgengni, bæði innanlands og utan.
Miðvikudagskaffið: Benedikt Ófeigsson næsti gestur
Miðvikudagskaffið í Kvikunni heldur áfram að vera dýrmætur vettvangur fyrir okkur til að hittast, ræða málin og njóta samveru. Í næstu viku mun Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, mæta til okkar í milliliðalaust spjall með Alla á Eyri.
Með hlýrri kveðju,
Bæjarstjórn Grindavíkur

