Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
1. apríl 2026

Íbúð­ir til leigu í Víði­hlíð

Grindavíkurbær auglýsir lausar til umsóknar íbúðir að Austurvegi 5 í Grindavík. Um er að ræða 12 íbúðir, annars vegar átta stærri íbúðir og fjórar minni.

Leiguverð á stærri íbúðum er u.þ.b. 170.000 kr. og á minni íbúðum u.þ.b. 126.000. Innifalið í leiguverði er hita- og rafmagnskostnaður auk geymslurýmis. Þá er að einnig innifalið í leigu aðgangur að þvottahúsi sem og sameign.

Upplýsingar um rétt umsækjenda til húsnæðisbóta má finna á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Íbúðirnar eru lausar til afhendingar frá og með 1. maí nk. Umsóknir skulu lagðar fram í íbúagátt Grindavíkurbæjar (08 – Málefni eldri borgara).

Umsækjendur þurfa hafa náð 72 ára aldri og uppfylla kröfur um líkamlega færni samkvæmt mati.