Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
4. september 2026

Pét­ur sest í sóf­ann á mið­viku­dög­um

Pétur G. Markan bæjarstjóri ætlar að setjast reglulega í sófann í íþróttahúsinu í vetur og bjóða Grindvíkingum í óformlegt spjall um bæjarmálin.

Sófaspjallið verður annan hvern miðvikudag frá kl. 16:00 til 17:00 og hefst miðvikudaginn 9. september.

Markmiðið er að skapa einfaldan og aðgengilegan vettvang þar sem bæjarbúar geta komið við, fengið upplýsingar um stöðu mála, rætt það sem efst er á baugi og komið mikilvægum verkefnum, ábendingum og hugmyndum á framfæri.

Ekki er um fyrirfram ákveðna dagskrá að ræða. Umræðuefnið ræðst einfaldlega af því sem Grindvíkingar vilja ræða hverju sinni.

Pétur verður í sófanum að jafnaði til kl. 17:00, og jafnvel lengur ef tilefni er til.

Grindvíkingar eru hvattir til að líta við, setjast niður með bæjarstjóra og ræða það sem þeim brennur í brjósti.