Pétur G. Markan ráðinn bæjarstjóri í Grindavík
Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt að ráða Pétur G. Markan í starf bæjarstjóra í Grindavík.

Pétur var valinn úr hópi 23 umsækjenda um starfið. Við val á nýjum bæjarstjóra var lögð áhersla á leiðtogahæfni, farsæla stjórnunarreynslu, þekkingu á opinberri stjórnsýslu og getu til að leiða endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur í nánu samstarfi við kjörna fulltrúa, starfsfólk sveitarfélagsins, íbúa, atvinnulíf og stjórnvöld.
Pétur starfaði síðast sem bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þar áður gegndi hann embætti biskupsritara og stýrði samskiptamálum þjóðkirkjunnar. Hann var áður sveitarstjóri Súðavíkurhrepps um fimm ára skeið og hefur jafnframt gegnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélög og opinbera aðila.
Við erum afar ánægð með að fá Pétur til starfa í Grindavík. Framundan eru stór og mikilvæg verkefni við áframhaldandi endurreisn samfélagsins og við teljum að reynsla hans, þekking og leiðtogahæfni muni nýtast sveitarfélaginu afar vel. Við hlökkum til samstarfsins á þessum mikilvægu tímamótum.
segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar.
Pétur segist þakklátur fyrir það traust sem sér sé sýnt.
Það er mér mikill heiður að taka að mér að vera bæjarstjóri Grindvíkinga, nær og fjær. Fram undan er söguleg uppbygging og kraftmikil endurreisn einstaks samfélags sem býr að miklum gæðum, með öryggi, framsýni og hugrekki að leiðarljósi. Markmiðið er tvíþætt, að tryggja markvissa uppbyggingu Grindavíkur og vinna Grindavík til baka og meira til. Ég kem til starfa með metnað til að vinna að hagsmunum Grindvíkinga og tala þeirra máli.
Bæjarstjórn Grindavíkur býður Pétur hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til farsæls samstarfs um áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins.

