Opið fyrir umsóknir í Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík
Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík.

Tilgangur Sóknarsjóðs er að styðja við smærri atvinnurekendur í Grindavík með það að markmiði að horfa megi til framtíðar í rekstri.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, 10. september 2026
Í umsóknum skal m.a. koma fram til hvers styrkurinn er ætlaður og hvernig hann muni koma til með að nýtast til áframhaldandi reksturs.
Styrkhæf eru fyrirtæki sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023 og fullnægja að öðru leyti skilyrðum reglna um Sóknarsjóð.
Nánari upplýsingar má finna á vef Byggðastofnunar.


