Ný bæjarstjórn tekin til starfa og samfélagssáttmáli undirritaður
Nýkjörin bæjarstjórn Grindavíkur tók formlega til starfa í dag, 2. júní. Samhliða undirrituðu allir bæjarfulltrúar samfélagssáttmála um endurreisn bæjarins.

Samkomulagið felur í sér breiða samstjórn allra kjörinna fulltrúa listanna þriggja og byggir á þeirri sameiginlegu sýn að uppbygging Grindavíkur krefjist samstöðu, ábyrgðar og skýrrar framtíðarsýnar.
Í samfélagssáttmálanum kemur fram að markmiðið sé að byggja upp örugga, líflega og samheldna Grindavík þar sem íbúar hafi raunhæft val um að snúa heim og byggja upp framtíð sína. Uppbyggingin byggir á gildunum samstöðu, öryggi, trausti, virðingu og seiglu.
Lögð verður áhersla á áframhaldandi uppbyggingu þjónustu, eflingu atvinnulífs, húsnæðismál, öryggisáætlanir og markvisst samráð við íbúa á næstu misserum.
Kjörið í embætti
Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar var jafnframt ákveðið hvernig helstu embætti sveitarfélagsins skiptast á kjörtímabilinu.
Ásrún Helga Kristinsdóttir verður forseti bæjarstjórnar fyrri hluta kjörtímabilsins en Guðbjörg Eyjólfsdóttir tekur við embættinu síðari hluta þess.
Guðbjörg Eyjólfsdóttir verður formaður bæjarráðs fyrri hluta kjörtímabilsins en Ásrún Helga Kristinsdóttir tekur við því hlutverki síðari hluta kjörtímabilsins.
Þá var samþykkt að auglýsa starf bæjarstjóra Grindavíkur laust til umsóknar.
Samstaða um endurreisn
Breið samstaða í bæjarstjórn Grindavíkur er að mati bæjarfulltrúa mikilvæg við þær aðstæður sem samfélagið hefur staðið frammi fyrir undanfarin misseri. Með sameiginlegum samfélagssáttmála senda kjörnir fulltrúar þau skýru skilaboð að uppbygging bæjarins verði unnin af einhug, þar sem öryggi, velferð og heimkoma Grindvíkinga verða áfram í forgangi.
Ný bæjarstjórn tekur nú við því mikilvæga verkefni að leiða áfram endurreisn samfélagsins og skapa forsendur fyrir sterka og líflega framtíð Grindavíkur.


