Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
20. maí 2026

Nið­ur­staða bæj­ar­stjórn­ar um óveru­leg breyt­ingu á Að­al­skipu­lagi Grinda­vík­ur­bæj­ar 2018-2032

Breyting á veglínu Norðurljósavegar og gatnamótum hans við Grindavíkurveg og afmörkun VÞ9.

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti á fundi nr. 596 þann 12.05.2026, uppfærða tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032. Um er að ræða breytingu á veglínu Norðurljósavegar ásamt því að gatnamót Norðurljósavegar við Grindavíkurveg verða endurbætt til að bæta umferðaröryggi. Þá breytist afmörkun og stærð á verslunar- og þjónustusvæðis VÞ9.

Breytingin felur í sér breytingu á texta í kafla 2.3.1 í greinagerð, breytingu á þéttbýlisuppdrætti aðalskipulagsins og breytingum á töflum 4, 14 og 15.

Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Grindavíkurbæjar.

Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar