Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
13. ágúst 2026

Leik­skóla­starf haf­ið að nýju í Grinda­vík

Leikskólastarf hófst að nýju í Grindavík í vikunni, í fyrsta sinn frá rýmingu bæjarins í nóvember 2023.

Kennslan fer fram í leikskólanum Laut, sem er hluti af samreknum leik- og grunnskóla Grindavíkur.

Tíu börn hófu aðlögun í þessari viku en alls eru 13 börn skráð í leikskólann eins og staðan er í dag. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning og skipulag starfsins með það að markmiði að skapa öruggt, þægilegt og hvetjandi umhverfi fyrir börnin.

Dagsskipulag hefur verið unnið með áherslu á fyrirsjáanleika og gott flæði. Jafnframt hafa helstu verkferlar, listar og merkingar verið yfirfarin og uppfærð og lögð er áhersla á skýra verkaskiptingu og gott upplýsingaflæði milli starfsfólks.

Skipulagið verður jafnframt sveigjanlegt og tekur mið af þörfum barnahópsins hverju sinni. Í starfinu verður gefinn góður tími fyrir leik og samskipti auk sköpunar, hreyfingar og útiveru. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreytt, markvisst og vel skipulagt starf og skapa þannig góðan grunn að ánægjulegu og farsælu leikskólaári.

Í síðustu viku var haldinn kynningarfundur með foreldrum þar sem farið var yfir skipulag og áherslur skólastarfsins í vetur.

Einnig hefur verið unnin rýmingaráætlun fyrir leikskólann í samstarfi við sveitarfélagið og viðbragðsaðila sem verður kynnt sérstaklega fyrir foreldrum barna.