Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
5. október 2026

Könn­un með­al Grind­vík­inga

Grindvíkingar eru hvattir til að taka þátt í könnun á vegum Forsætisráðuneytisins.

Könnuninni er beint til þeirra sem búsettir voru í Grindavík þegar bærinn var rýmdur 10. nóvember 2023.

Í könnuninni er meðal annars spurt um nýtt áhættumat fyrir Grindavík, búsetu, framtíðarsýn og líðan, nú þegar nærri þrjú ár eru liðin frá rýmingu bæjarins.

Hluti spurninganna hefur áður verið lagður fyrir Grindvíkinga. Þar er sama orðalagi haldið til að hægt sé að bera niðurstöðurnar saman við fyrri kannanir og fylgjast með því hvernig viðhorf og staða Grindvíkinga hafa þróast.

Mikilvægt er að sem flest taki þátt svo niðurstöðurnar gefi sem skýrasta mynd af stöðu og viðhorfum Grindvíkinga, óháð því hvar þeir búa í dag. Niðurstöðurnar geta þannig veitt mikilvægar upplýsingar um stöðu samfélagsins, framtíðarsýn og þær áherslur sem Grindvíkingar telja mikilvægar til framtíðar.

Öll sem búsett voru í Grindavík 10. nóvember 2023 eru hvött til að taka þátt og svara könnuninni sem fyrst.

Könnunin er aðgengileg á maskina.is/grindavik