Kaffiveitingar í Grunnskólanum við Ásabraut á kjördag
Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí nk. stendur yfir frá kl. 9:00 til 22:00. Kjörstaður er í Grunnskólanum við Ásabraut.

Milli kl. 13:00 og 17:00 býður Grindavíkurbær öllum Grindvíkingum, á öllum aldri, núverandi sem fyrrverandi upp á kaffiveitingar í skólanum. Þar gefst einnig tækifæri til að skoða skólahúsnæðið en töluverðar framkvæmdir hafa átt sér stað síðustu mánuði, innandyra sem og utandyra.
Við hlökkum til að sjá sem flesta á kjörstað og bjóða Grindvíkinga velkomna í skólann á nýjan leik.


