Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
17. apríl 2026

Íbúa­fund­ur um fram­tíð Grinda­vík­ur: End­ur­reisn og skóla­starf

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur boðað til íbúafundar um endurreisn og skólastarf.

Bæjarstjórn Grindavíkur býður öllum Grindvíkingum, forsætisráðherra, þingmönnum Suðurkjördæmis og fulltrúum Fasteignafélagsins Þórkötlu til opins íbúafundar miðvikudaginn 22. apríl næstkomandi, kl. 16.30 í Gjánni.

Forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, hefur verið boðið að ávarpa fundinn og greina frá afstöðu ríkisstjórnarinnar til endurreisnar Grindavíkur.  

Bæjarfulltrúar kynna sýn sína á næstu skref endurreisnarinnar og leita eftir stuðningi og umboði bæjarbúa til að hefja skólastarf í Grindavík strax á komandi hausti. 

Valkostir í húsnæðismálum Til fundarins hefur verið boðið fulltrúa Fasteignafélagsins Þórkötlu til að kynna endurkaupaáætlun félagsins. Það er mikilvægt skref fyrir samfélagið að þessar áætlanir líti dagsins ljós sem fyrst, enda þurfa Grindvíkingar að sjá hvaða valkostir eru í boði til að geta tekið upplýstar og góðar ákvarðanir um framtíð sína og búsetu. Við væntum þess að sjá fjölbreyttar lausnir sem mæta þörfum ólíkra fjölskyldna.

Þingmönnum Suðurkjördæmis er sérstaklega boðið til fundarins og væntum við þess að heyra afstöðu hvers flokks til uppbyggingar og endurreisnar Grindavíkur.

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Flokkur fólksins
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, Sjálfstæðisflokkur
  • Víðir Reynisson, Samfylkingin
  • Karl Gauti Hjaltason, Miðflokkurinn
  • Halla Hrund Logadóttir, Framsóknarflokkur
  • Sandra Sigurðardóttir, Viðreisn
  • Sigurður Helgi Pálmason, Flokkur fólksins
  • Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokkur
  • Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Samfylkingin
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokkur

Við hvetjum Grindvíkinga til að fjölmenna, taka þátt í samtalinu og sýna samstöðu. Með jákvæðni og góðri samvinnu getum við byggt upp sterkt samfélag á ný.