Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
2. september 2026

Hlýrra og lygn­ara í Grinda­vík í kjöl­far ham­fara

Ný athugun á veðurmælingum bendir til þess að breytingar á landslagi umhverfis Grindavík hafi haft áhrif á veðrið í bænum.

Norðanáttin er nú hægari og hlýrri en áður og hafgolan virðist einnig hafa breyst.

Í samantekt Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings og Sveins Gauta Einarssonar umhverfis- og orkuverkfræðings er farið yfir veðurmælingar í Grindavík fyrir og eftir þær miklu breytingar sem orðið hafa á landslaginu norðan við bæinn. Niðurstöðurnar eru áhugaverðar.

Norðanáttin er nú almennt hægari og hlýrri en áður, sérstaklega að hausti og yfir veturinn. Mestur er munurinn þegar vindur blæs úr norðaustri. Þá mælist hitinn að meðaltali um 0,7°C hærri en fyrir eldgosin.

Hraunið hitar loftið

Skýringin á hlýrri norðanátt virðist fyrst og fremst liggja í nýju hraununum norðan við Grindavík. Þau eru enn að kólna og gefa frá sér hita. Þegar vindur blæs yfir hraunið hitnar loftið áður en það berst yfir bæinn. Áhrifin eru mest yfir haust- og vetrartímann og gætu varað í einhver ár á meðan hraunin halda áfram að kólna.

Nýju hraunin og varnargarðarnir virðast einnig hægja á vindinum. Yfirborðið norðan við bæinn er nú mun ósléttara en áður og það dregur úr vindhraðanum þegar vindur blæs þaðan yfir Grindavík. Varnargarðarnir auka enn frekar á þessi áhrif.

Hægari hafgola á góðviðrisdögum

Breytingarnar virðast einnig ná til góðviðrisdaga að sumri. Á hlýjum sumardögum mælist vindur síðdegis að jafnaði um 0,5 m/s hægari en áður. Einnig eru vísbendingar um að hafgolan hagi sér öðruvísi og mögulega hafi vindátt hennar breyst.

Athugunin bendir því til þess að breytingarnar á landslaginu hafi þegar haft áhrif á staðbundið veður í Grindavík. Enn þarf þó lengri tíma og fleiri mælingar til að sjá betur hvaða áhrif koma frá nýju hraununum og hvaða áhrif varnargarðarnir hafa. Sérstaklega þyrfti að skoða vind nær varnargörðunum til að meta bein áhrif þeirra.