Helgihald í Grindavíkurkirkju um páskana
Páskarnir eru tími kyrrðar, vonar og samveru. Í Grindavíkurkirkju verður boðið upp á notalegar samverustundir um páskana.

Föstudagurinn langi kl. 13:00–15:00
Lesnir verða Passíusálmar í kyrrlátri og hugljúfri stund. Að lestri loknum verður boðið upp á kaffi og meðlæti.
Páskadagur kl. 11:00
Hátíðarmessa þar sem Árni Heiðar organisti og kór Grindavíkurkirkju leiða sönginn. Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari.
Að messu lokinni er boðið upp á heitt súkkulaði, páskaegg, kaffi og meðlæti í notalegri samveru.
Öll eru hjartanlega velkomin að taka þátt í páskahaldi í Grindavíkurkirkju.

