Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
20. mars 2026

Heim­ilt að stofna nýj­ar nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar í Grinda­vík

Bæjaryfirvöld vilja vekja athygli íbúa, fyrirtækjaeigenda og annarra fasteignaeigenda á mikilvægri breytingu varðandi tryggingamál í bænum.

Frá og með 1. janúar 2026 hefur Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) veitt vátryggingafélögum heimild til að stofna nýjar náttúruhamfaratryggingar, sem og að breyta eldri tryggingum, fyrir eignir á Grindavíkur- og Svartsengissvæðinu. 

Undanfarið hefur gætt misskilnings um að alls ekki sé hægt að tryggja eignir á svæðinu gagnvart náttúruhamförum vegna ástandsins. Þessi ákvörðun NTÍ skýrir stöðuna og opnar á ný möguleika fyrir þá sem þurfa að tryggja mannvirki eða uppfæra tryggingarfjárhæðir eldri eigna. 

Mikilvægur fyrirvari

Mjög mikilvægt er þó að hafa í huga þau skilyrði sem fylgja þessari heimild. Tryggingarverndin og bótaskyldan nær ekki til tjóns sem hlýst af þeirri atburðarás sem hófst í nóvember 2023, hvorki beint né óbeint. 

Komi hins vegar til annarra ótengdra náttúruhamfara á svæðinu munu þessar nýju og uppfærðu tryggingar gilda. Þetta þýðir að eigendur geta tryggt eignir sínar fyrir annarri náttúruvá að fullu, þótt yfirstandandi jarðhræringar eða hugsanleg eldgos sem rekja má til þeirra séu undanskilin. Bent er á að þessi breyting hefur engin áhrif á fjárhæð iðgjalda. 

Fyrir atvinnulífið og fasteignaeigendur í Grindavík er þetta skref í átt að eðlilegra umhverfi. Bæjaryfirvöld hvetja þá sem vilja nýta sér þessa heimild til að kynna sér málið nánar. Nánari upplýsingar má finna á vef Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) og hjá viðkomandi vátryggingafélögum. 

Skilyrði og nánari forsendur tryggingaverndar:

  • Gildistaka: Heimildin til að stofna nýjar náttúruhamfaratryggingar eða breyta eldri tryggingum á svæðinu tók gildi 1. janúar 2026. 
  • Yfirstandandi atburðir undanskildir: Skýr fyrirvari er gerður um að tryggingarverndin og bótaskylda NTÍ nær ekki til tjóna, hvorki beinna né óbeinna eða afleiðinga þeirra, sem tengjast þeirri atburðarás á Svartsengissvæðinu sem hófst í nóvember 2023. 
  • Hvað telst til yfirstandandi atburða? Atburðarásin sem hófst 10. nóvember 2023 er að mati Veðurstofu Íslands enn yfirstandandi eða yfirvofandi. Þannig mun ný trygging ekki bæta tjón af völdum eldgoss eða jarðskjálfta sem tilheyra þessari sömu hrinu. 
  • Hvað fæst þá bætt? Tryggingin mun einungis bæta tjón af völdum náttúruhamfara sem eru algjörlega ótengd framangreindum atburðum og falla ótvírætt undir lög um Náttúruhamfaratryggingu Íslands (nr. 55/1992). 
  • Engin landfræðileg afmörkun: Fyrirvarinn um bótaskyldu er ekki afmarkaður við sérstaka landfræðilega línu á korti í Grindavík. Hann tekur einfaldlega til allra verðmæta sem verða fyrir tjóni vegna þeirra atburða sem nú eru í gangi. 
  • Úrlausn um bótaskyldu: Það er NTÍ sem tekur ákvörðun um hvort tjón teljist tengjast yfirstandandi atburðum eða sé ótengt þeim, á grundvelli laganna. Ákvarðanir NTÍ er þó hægt að kæra til sjálfstæðrar úrskurðarnefndar náttúruhamfaratrygginga sem hefur sérþekkingu á sviði vátryggingaréttar og mannvirkja. 
  • Skírteini og iðgjöld: Breytingin hefur engin áhrif á fjárhæð iðgjalda. Sérstök áritun sem útskýrir þessa fyrirvara verður hins vegar sett á tryggingaskírteini viðkomandi eigna.