Guðlaug ráðin skólastjóri í Grindavík
Guðlaug Erlendsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri í nýjum samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík.

Guðlaug býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun og kennslu. Undanfarin tvö ár hefur hún starfað sem skólastjóri við Grunnskóla Borgarness. Þar áður starfaði hún sem aðstoðarskólastjóri við Grunnskóla Grindavíkur í sjö ár og gegndi jafnframt stöðu deildarstjóra miðstigs.
Guðlaug er með doktorspróf í menntavísindum frá Háskóla Íslands, auk M.Ed. í stjórnun menntastofnana, MA í félagsfræði og BA í sál- og afbrotafræði og kennsluréttindi frá Kennaraháskóla Íslands.
Hún hefur einnig starfað við kennslu í Mósambík og Namibíu, auk þess að hafa verið umsjónarkennari við Fellaskóla, Brekkubæjarskóla og Grunnskóla Raufarhafnar.
Mikilvægt skref við endurreisn samfélagsins
Ráðning Guðlaugar er stórt og jákvætt skref í áframhaldandi uppbyggingu skólastarfs í Grindavík. Reynsla hennar af kennslu og stjórnun, ásamt tengslum við samfélagið í Grindavík, leggur góðan grunn að skólastarfi í nýjum skóla.
Guðlaug mun hefja störf við fyrsta tækifæri og leiða undirbúning fyrir skólahald í Grindavík í haust.
Við bjóðum Guðlaugu hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til þess að vinna með henni að því að byggja upp öflugt og metnaðarfullt skólasamfélag í Grindavík á ný.

