Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
11. nóvember 2026

Grinda­vík­ur­bær hvet­ur íbúa til að gera heim­il­is­áætl­un

Grindavíkurbær hvetur íbúa til að kynna sér bæklinginn Verum viðbúin og gera heimilisáætlun fyrir sitt heimili.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf bæklinginn út 3. nóvember og sendi hann öllum landsmönnum á Ísland.is.

Í bæklingnum eru leiðbeiningar um hvernig heimili geta búið sig undir truflanir á daglegu lífi. Meginráðið er að hvert heimili geti sinnt grunnþörfum sínum í að minnsta kosti þrjá daga. Þar er einnig fjallað um hvað gera skal ef yfirgefa þarf heimilið.

Heimilisáætlun gerir heimilisfólk saman. Í henni kemur fram hvaða birgðir og búnað heimilið þarf. Þar er líka tekið mið af sérþörfum, svo sem lyfjum, hjálpartækjum, barnamat og fóðri fyrir gæludýr. Almannavarnir mæla með því að áætlunin sé prentuð út og geymd þar sem allir á heimilinu vita af henni. Gott er að fara reglulega yfir hana og ræða hana við börnin.

Grindvíkingar vita af eigin reynslu að stundum þarf að rýma bæinn með stuttum fyrirvara. Þá skiptir máli að hver og einn viti hvað á að taka með og hvert á að fara.

Bæklinginn má lesa á íslensku, á ensku, á pólsku og á auðlesnu máli. Táknmálsútgáfa er á vefnum verumvidbuin.is.

Rýmingarleiðbeiningar í hvert hús

Á næstunni verða nýjar rýmingarleiðbeiningar Grindavíkurbæjar bornar í hús í bænum. Þær eru í tveimur útgáfum, annarri fyrir fullorðna og hinni fyrir börn. Bærinn hvetur íbúa til að kynna sér leiðbeiningarnar vel, fara yfir barnaútgáfuna með börnunum og geyma hvort tveggja með heimilisáætluninni.

Jafnframt verður dreift í hús skilti sem setja skal i glugga þegar hús er rýmt og tómt.

Leiðbeiningarnar verða einnig settar á vef bæjarins, á síðuna Náttúruvá. Þar eru fyrir upplýsingar um náttúruvá og viðbrögð við henni.

Hvatningin og útburður rýmingarleiðbeininganna eru meðal aðgerða í nýju áhættumati Grindavíkur.