Grindavík tekur þátt í IceFish 2026
Grindavíkurbær tekur þátt í IceFish 2026, alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni sem haldin verður í Fífunni í Kópavogi dagana 22.-24. september.

Grindavík verður þar með sameiginlegt sýningarsvæði þar sem markmiðið er að sýna þann mikla kraft, þekkingu og breidd sem býr í atvinnulífi Grindavíkur og þeirri starfsemi sem tengist og þjónustar sjávarútveginn.
Horft verður á alla virðiskeðju sjávarútvegsins, frá útgerð og vinnslu yfir í tækni, viðhald, hafnarþjónustu, flutninga, orku, nýsköpun, fullnýtingu, hringrásarlausnir og fjölbreytta þjónustu við greinina.
Markmiðið er að skapa eina sterka Grindavíkurheild á sýningunni þar sem fyrirtækin, þekkingin og tengslin þeirra á milli fá að njóta sín.
Kallað eftir fyrirtækjum til þátttöku
Fyrirtæki í Grindavík sem starfa í eða þjónusta sjávarútveginn og telja sig eiga erindi inn í sameiginlega þátttöku Grindavíkur eru hvött til að skrá þáttöku.
Skráningarfrestur er til og með 1. september.
Verið er að móta endanlega útfærslu og hönnun sýningarsvæðisins og verður unnið hratt að undirbúningi á næstu vikum. Mikilvægt er því að áhugasöm fyrirtæki hafi samband sem fyrst svo hægt sé að taka mið af þátttakendum við skipulag og útfærslu svæðisins.
Grindavíkurhöfn hefur gert samning við Íslenska ferðaklasann um framkvæmd verkefnisins og utanumhald þátttakenda á sýningunni.
Skráning og nánari upplýsingar
Skráðu stendur yfir til 1. september.
Nánari upplýsingar veitir María Hjálmarsdóttir, Íslenska ferðaklasanum, á maria@mhradgjof.is.


