Grenndarstöðin færð í Laut
Grenndarstöð fyrir heimilissorp hefur verið færð og er nú staðsett á malarplaninu við Laut.

Stöðin er staðsett hægra megin þegar ekið er inn götuna frá Víkurbraut, þar sem gæsluvöllurinn var áður.
Á grenndarstöðinni eru gámar fyrir:
- pappír og pappa
- plast
- málma
- gler
- textíl
Grindavíkurbær vill um leið ítreka mikilvægi góðrar umgengni á grenndarstöðinni. Sorp skal fara í viðeigandi gáma og ekki má skilja eftir úrgang á jörðinni eða við gáma.
Grenndarstöðin er ætluð þeim úrgangsflokkum sem gámar eru fyrir á svæðinu. Annan úrgang þarf að fara með á móttökustöð.
Myndavélaeftirlit verður á svæðinu til að stuðla að góðri umgengni og réttri notkun grenndarstöðvarinnar.


